Ný alþjóðleg skákstig koma út á morgun, 1. september. Frekar litlar breytingar hér innanlands enda ekkert reiknað innlent kappskákmót þennan mánuðinn. Íslenskir skákmenn hafa þó verið óvenju duglegir að tefla erlendis í sumar og er það mikið fagnaðarefni. Heldur meira fjör næsta mánaðarmót þegar áskorendaflokkur og Haustmót TR verða reiknuð.

Hannes Hlífar Stefánsson heldur stöðu sinni sem stigahæsti skákmaður landsins. Sigurður Daði Sigfússon hækkar mest allra á stigum – en það hafa sést stærri tölur!

Topp 20

Hannes Hlífar Stefánsson (2529) heldur stöðu sinni sem stigahæsti skákmaður landsins. Annar í stigaröðinni er Hjörvar Steinn Grétarsson (2522) og Héðinn Steingrímsson (2485)  sá þriðji. Skammt undan eru Vignir Vatnar Stefánsson (2484), sem nú birtist í fyrsta sinn sem stórmeistari á stigalista FIDE, og Helgi Áss Grétarsson (2483).

Topp 100

Mestu hækkanir

Þrír skákmenn hækkuðu á stigum. Allir óverulega. Sigurður Daði Sigfússon er hækkunarkóngurinn með 3ja stiga hækkun!

Félagagrunnur skákmanna

- Auglýsing -