Skákvertíðin fer vel af stað hjá elsta taflfélagi landsins, TR. Um síðustu helgi lauk vel sóttu móti í bikarsyrpu barna en þar voru tefldar sjö umferðir með tímamörkunum 30 30. Þá hófst Haustmót TR á sunnudaginn en lengi vel voru forráðamenn félagsins uggandi um þátttökuna, en það var að einhverju leyti ástæðulaust því að undanfarin ár hafa þátttakendur á skákmótum tekið upp þann leiða sið að skrá sig til keppni rétt áður en skráningarfrestur rennur út.
Á lokamínútum bættust í hóp keppenda fjölmargir sterkir skákmenn í mótið og er þátttakan með besta móti. Teflt er í þrem átta manna riðlum þar sem allir tefla við alla og svo er einn vel skipaður opinn flokkur.
Í A-flokki eru keppendur í stigaröð þessir: Björn Þorfinnsson, Vignir Vatnar Stefánsson, Dagur Ragnarsson, Magnús Pálmi Örnólfsson, Þorvarður Ólafsson, Jóhann Ingvason, Gauti Páll Jónsson og Aron Thor Mai.
Björn Þorfinnsson er stigahæsti keppandi mótsins og þ.a.l. sá sigurstranglegasti. Hann vann örugglega í fyrstu umferð og virtist ætla að vinna Dag Ragnarsson í 2. umferð. Það var hörð baráttuskák þar sem Björn fékk betra eftir byrjunina, Dagur jafnaði taflið en virtist teygja sig of langt í endatafli og Björn náði aftur betri stöðu. Dagur missti af nokkrum þvinguðum jafnteflisleiðum og eftir langa og stranga baráttu kom þessi staða upp:
Dagur Ragnarsson – Björn Þorfinnsson
Það er ótrúlegt annað en að Björn hafi séð 75. … Rf6+! sem vinnur strax. Kannski hefur hann haldið að Dagur myndi leika 76. Kxg5 Rxe8 77. d7 en þá kemur skemmtileg vending, 77. … Rd6! og 78. d8(D) er svarað með 78. … Rf7+ og hin nýfædda drottning fellur. Hvítur getur hinsvegar vakið upp riddara, 78. d8(R) en sá er of skrefstuttur, 78. … f3 79. Rc6+ Ke4 80. Ra5 f2 81. Rb3 Ke3! og f-peðið rennur upp í borð. Björn lék hinsvegar…
75. … Ke4??
…og eftir
76. Kxg5 f3 77. Rf6+ Rxf6 78. Kxf6 f2 79. d7 f1(D)+ 80. Ke7!
…gat hann ekki hindrað för d-peðsins upp í borð og mátti sætta sig við jafntefli.
Meistaramót Hugins hófst svo á mánudagskvöldið síðasta og er einnig vel skipað. Meira um það síðar.
Kasparov gengur illa í „Fischer random“
Það hefur allt gengið á afturfótunum hjá Garrí Kasparov í sýningareinvígi hans við Búlgarann Veselin Topalov sem hófst 11. september. Eftir þriðja keppnisdag á fimmtudaginn var Topalov með örugga forystu, 10 ½ : 7 ½. Keppnisfyrirkomulagið hefur verið með þeim hætti að tefldar hafa verið fjórar skákir á dag, tvær atskákir (tímamörk 30 10 Bronstein) og tvær hraðskákir ( tímamörk 5 5 Bronstein).
Atskákirnar hafa meira vægi en fyrir sigur þar fást tveir vinningar gegn einum í hraðskákinni. Þess vegna hefur Topalov þriggja vinninga forskot; hann hefur unnið fjórar atskákir en Kasparov tvær en í hraðskákunum er staðan Kasparov í hag, 3 ½ : 2 ½.
Ein upphafsstaða af 960 mögulegum hefur verið dregin út fyrir hvern keppnisdag og margar skrítnar og skemmtilegar stöður séð dagsins ljós. Þó að einvígi Kasparovs og Topalovs veki mesta athygli eru hin ekki síður athyglisverð. Þar var staðan þessi: Aronjan – Dominguez 12: 6, So – Giri 11 : 7, Nakamura – Svidler 9 ½ : 8 ½, Vachier-Lagrave – Shankland 11 ½: 6 ½.
Skákþættir Helga Ólafssonar í Morgunblaðinu birtast viku síðar á Skák.is. Þessi skákþáttur birtist 15. september 2018.

















