Guðlaug Þorsteinsdóttir varð fyrst til að ná að halda aftur af Olgu Prudnykovu á Íslandsmóti kvenna. Jafntefli varð niðurstaðan í þeirra skák en á sama tíma vann Lenka sína skák og minnkaði muninn í hálfan vinning á milli þeirra.
Guðlaug Þorsteinsdóttir(1984) – Olga Prudnykova (2268)
Guðlaug tefldi mjög traust gegn Grunfeldsvörn Olgu og ruggaði engum bátum. Olga fékk engin færi en hafði nægilega virka stöðu til að þvinga fram jafntefli með svörtu mönnunum.
Lenka Ptacnikova(2139) – Iðunn Helgadóttir (1694)

Lenka nýtti tækifærið og vann gegn Iðunni. Taktísk mistök í 17. leik voru nóg fyrir Lenku sem hafði drottningu fyrir tvo menn upp úr krafsinu en menn svarts unnu ekki nógu vel saman og kostaði það frekara liðstap.
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (2014) – Guðrún Fanney Briem (1706)

Jóhann tefldi sína bestu skák til þessa á mótinu gegn Guðrúnu. Jóhanna hafði hvítt og jók jafnt og þétt stöðuyfirburði sína og saumaði að Guðrúnu þar til staðan gaf sig.
Úrslit umferðarinnar

Staðan

Olga hefur hálfs vinnings forskot fyrir lokaumferðina á Guðlaugu og Lenku.

Olga fær hvítt á Lenku og vinni hún skákina er hún sigurvegari mótsins og Íslandsmeistari kvenna. Fari svo að Olga vinni ekki þá getur Guðlaug tryggt sér aukakeppni með sigri í sinni skák. Aukakeppnin yrði gegn Olgu ef Olga og Lenka gera jafntefli í þeirri sviðsmynd en gegn Lenku ef Lenka vinnur gegn Olgu. Hörkuspenna því framundan!
Lokaumferðin fer fram klukkan 14:00 í Skáksambandi Íslands í Faxafeni 12.














