Verðlaunahafar á síðasta áskorendaflokki.

Um helgina fór fram vel sóttur áskorendaflokkur kvenna. Mótið fór fram samhliða Íslandsmóti kvenna í Skáksambandi Íslands og voru alls 12 ungar skákstelpur mættar til leiks.

Tefldar voru 5 umferðir með tímamörkunum 30+30 sem eru lágmarkstímamörk til að hægt sé að reikna skákir til kappskákstiga.

Sóley Kría vann allar sinar skákir og tefldi mjög vel. Vann mikilvægustu skákirnar með góðri endataflstaflmennsku þar sem hún kláraði peðsendatföl gegn andstæðingum sínum.

Emilía Embla Berglindardóttui átti líka gott mót og kom í mark með 4 vinninga af 5. Það var gaman að sjá þrjár kynslóðir að tafli á sama tíma í Skáksambandinu og virkilega flott að fá svona góða mætinu hjá ungu stelpunum.

Einstök úrslit má nálgast á Chess-Results

Chess-Results

- Auglýsing -