Þeir félagar Vignir Vatnar Stefánsson (2484) og Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2407)hafa báðir 3,5 vinning af 5 mögulegum og eru taplausir á Heimsmeistaramóti U20 í Mexíkó. Frídagur er í dag.

Vignir hafði svart gegn Portúgala, Jose Guilherme Santos Barria (2392) en hann er FIDE meistari. Vignir jafnaði taflið auðveldlega með svörtu en það var ekki nægjanlegt líf í stöðunni til að tefla til vinnings og hvítur virtist sáttur við jafnteflið.

Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2407) fékk hvítt á Frakkann Joseph Girel (2494) en sá er alþjóðlegur meistari. Skák þeirra varð öllu líflegri. Svartur náði frumkvæðinu í miðtaflinu/endataflinu með betri peðastöðu og betri biskup og Aleksandr var í hálfgerðri nauðvörn lengst af.

Frakkinn var kominn langleiðina með að brjótast í gegnum varnir Sasha þegar honum verða á mistök í 63. leik

Hér lék Frakkinn 63…Hg2? og hér hefði Sasha getað snúið vörn í sókn með 64.Hxd5! og hvítur stendur til vinnings útaf frípeðunum sem myndast. Sasha lék þess í stað 64.a5 en var samt kominn inn í taflið. Svarti kóngurinn stendur illa í báðum varíöntum.

Sasha var líklega kominn með aðeins vænlegra endtafl og hér er 69.c5 örugglega betra á hvítt. Okkar maður var hinsvegar í basli á klukkunni og eftir langa vörn 69.Bd2 Hh3 og 70.Ha6+ skiljanlega meira freistandi framhald í stöðunni. Hvítur þráskákar á a- og b-línunni og jafntefli niðurstaðan.

3,5 vinningur hjá þeim báðum eftir umferðirnar 5 eins og áður sagði. Enn liggur pörun ekki fyrir en samkvæmt rannsóknarvinnu Skak.is ætti Aleksandr að fá svart á stórmeistarann Momchil Petkov (2499) frá Búlgaríu en Vignir svart á Savva Vetokhin (2400) sem er Rússi en teflir undir fána FIDE.

Um mótið:

Ísland á tvo fulltrúa á Heimsmeistaramóti 20 ára og yngri í Mexíkó. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2484) er númer 19 í styrkleikaröðinni og Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2407) er númer 36 í styrkleikaröð. Stigahæstur keppenda er hinn umdeildi Hans Moke Niemann (2667) sem hefur verið mikið milli tannanna á fólki undanfarið. Skráðir keppendur eru 149.

Tefldar verða 11 umferðir og er dagskráin eftirfarandi (tímar íslenskir)

  1. umferð 21. september LOKIÐ
  2. umferð 22. september LOKIÐ
  3. umferð 22. september LOKIÐ
  4. umferð 23. september LOKIÐ
  5. umferð 24. september LOKIÐ
  6. umferð 26. september klukkan 22:00
  7. umferð 27. september klukkan 22:00
  8. umferð 28. september klukkan 22:00
  9. umferð 29. september klukkan 22:00
  10. umferð 30. september klukkan 22:00
  11. umferð 1. október klukkan 16:00

Frídagur er í dag mánudaginn 25. september

- Auglýsing -