Áttundu umferð á Haustmóti TR lauk í kvöld þegar frestuð skák Lenku Ptacnikovu og Jóhanns Ingvasonar var tefld. Bárður Örn Birkisson er sigurvegari í A-flokki Haustmóts Taflfélags Reykjavíkur en hann hefur 1,5 vinning í forskot fyrir lokaumferðina. Hann lagði tvíburabróður sinn að velli í 8. umferðinni og verður gaman að sjá hvort hann nái 9 vinningum af 9 mögulegum! Væri gaman að heyra frá sögufróðum mönnum hversu oft slíkur árangur hefur náðst!
Staðan fyrir umferðina var svona:

Bárður hafði 7 vinninga og Stefán og Hilmir urðu að treysta á að Björn myndi hjálpa þeim í 8. umferðinni.
Í frestuðu skákinni áttust við skákmenn sem tóku nýlega þátt í Landsliðsflokki og eru ekki að eiga sitt besta mót á Haustmótinu.
Lenka Ptacnikova – Jóhann Ingvason

Lenka hafði betra tafl lengst af í skákinni en aldrei þannig að Jóhann væri í stórkoslegum vandræðum. Undir lok tímamarkanna fór að síga á ógæfuhliðina hjá Lenku með hvítt.
Jóhann stóð til vinnings eftir tímahrakið. 41.Re4?? hefði átt að vera tapleikur þó staðan hafi verið mjög erfið.
Jóhann svaraði 41…Rd5?? en missti af 41.De1 og fátt um fína drætti eftir hjá hvítum. Eftir gerðan leik komst hvítur aftur inn í skákina en 44.Rc5?? gaf svörtum færi á að klára dæmið.
Jóhann missti ekki af færinu í þetta skiptið. 44…Re3+! og þungu mennirnir kláruðu dæmið.
Stefán Bergsson – Ingvar Wu Skarphéðinsson

Stefán þurfti á sigri að halda og að treysta á Björn til að tapa ekki gegn Bárði.
Stefán fékk fína stöðu í byrjuninni og 15.Bd3 hefði viðhaldið yfirburðum hvíts. 15.f5?! var líklega of snemma á ferðinni. Svartur fékk betri stöðu en náði ekki að gera sér mat úr því og tvö tempó í miðtaflinu Be6-d7-e6 settu hvítan aftur í bílstjórasætið.
Stefán náði ekki að gera sér mat úr því og endataflið einfaldaðist í drottningu og þrjú peð fyrir báða á sama væng. Jafnteflið góð niðurstaða fyrir Ingvar í baráttunni við Gauta um að verða skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur.
Hilmir Freyr Heimisson – Gauti Páll Jónsson

Landsliðsmaðurinn Hilmir Freyr var í sömu stöðu og Stefán, þurfti nauðsynlega á sigri að halda til að eiga einhverja möguleika á toppsætinu.
Yfirleitt er hægt að treysta á skemmtilegar skákir frá Gauta og hann tefldi Benko-bragð gegn Hilmi og hélt í horfinu í miðtaflinu og var kominn með allt að því vinningsstöðu.
30…f4?? hleypti hvítum inn í skákina en 30…He2 hefði gert hvítum ansi erfitt fyrir. Svarta sóknin er stórhættuleg og hvítur á langt í land með að ná hótunum, svarta drottningin valdar 8. reitaröð og biskupinn á d4 stendur vel til varnar og sóknar. T.d. er 31.Dg5 svarað með 31…Kh8 og hvítur er í vandræðum.
Hilmir fékk sjálfur færi á brögðóttum leik eftir 33…Bh4??
34.Df3!! hefði verið flottur hér. Svarti hrókurinn getur ekki farið langt vegna Dg4+ sem hreinlega mátar. 34.g3?? var ekki góður af þeim sökum en 34…Be7?? var aftur tapstaða á svart eftir 35.Hf1!
Það sem svartur missti af er ótrúlegt.
Svartur átti 34…Bf6!! sem er jafnt tafl 35.Dxf6 He1+ 36.Hxe1 og 36…De4!!
Svartur spilar út patt-kortinu! Þetta var síðasti sénsinn hjá svörtum og Hilmir leyfði ekki frekara sprikl!
Þorvarður F. Ólafsson – Haraldur Haraldsson

Tveir þéttir skákmenn og úr varð löng pósa barátta. Haraldur reyndi að tefla upp á góðan riddara gegn lélegum biskup.
Varði hefði getað stoppað það með 40.gxf6! hér þar sem 40…Kxf6 er svarað með 41.Bf1! og hvítur er mögulega með strategískt unnið. Menn svarts eru bundir við að valda og hvítur getur bætt stöðuna að vild. Varði lék 40.Bc4? og missti af sínum séns.
Sénsinn hjá Haraldi var í þessari stöðu.
49…Rxb3? var ekki rétta drápið. 49…Rxf3 var rétta drápið og valdaða f-peðið gefur líklegast unnið endatafl. Jafntefli varð að lokum niðurstaðan.
Björn Hólm Birkisson – Bárður Örn Birkisson

Björn hafði betra tafl eftir byrjunina og lengst af en tók líklega strategískt ranga ákvörðun þegar hann gaf biskuppar sitt.
21.Bxf6 virtist gefa svörtu fínt tafl, riddarinn settist að á c5 reitnum og flest vandræði svarts að baki. Uppskipti á þungum mönnum hjálpaði ekki hjá hvítum. Drottning og riddari vinna oft vel saman og Bárður náði að mynda mátnet og hvíti kóngurinn slapp ekki.
Enn einn sigurinn hjá Bárði sem hefur varla stigið feilnótu allt mótið.

Staðan fyrir lokaumferðina:

Bárður hefur 1,5 vinnings forskot á Hilmi Frey. Topp 3 eru öruggir með sín sæti.

Bárður mætir Stefáni með hvítt í lokaumferðinni og hefur möguleika á að ná 9 vinningum af 9 sem væri magnaður árangur.
Opinn flokkur

Jóhann Ragnarsson og Benedikt Þórisson gerðu jafntefli í toppuppgjörinu.

Staðan er því svona:

Jóhann er efstur með 6,5 vinning og hefur hálfan vinning í forskot á Benedikt, Adam og Jóhann Jónsson sem hafa 6 vininnga. Jóhann og Jóhann mætast í lokaumferðinni, Jónsson hefur svart.

Adam og Benedikt þurfa að vinna með svörtu og treysta á hjálp Jóhanns Jónssonar til að eiga mögulega á efsta sætinu.
Teflt er í skákhöllinni í Faxafeni 12. Lokaumferðin hefst 18:30 á miðvikudaginn.















