Fyrirhugað er að mótið verði sjö umferðir og er dagskrá sem hér segir:

Sunnudagur 23. september kl. 13.00      1. umferð

Fimmtudagur 27. september kl. 18.00     2. umferð

Sunnudagur 30. september kl. 13.00      3.umferð

Fimmtudagur 4. október kl. 18.00        4.umferð

Laugardagur 6. október kl. 13.00        5. umferð

Fimmtudagur 11. október kl. 18.00       6.umferð

Sunnudagur 14. október kl. 13.00        7. umferð

Röðun verður eftir svissneska kerfinu, ef fjöldi þátttakenda leyfir (11 eða fleiri). Ef þátttaendur verða 10 eða færri, munu allir tefla við alla og fjöldi umferða sem því nemur.

Skráning er hjá formanni félagsins í askell@akmennt.is, með skilaboðum á Facebook síðu félagsins eða á skákstað, í síðasta lagi 15. mínútum fyrir upphaf fyrstu umferðar.

Þátttökugjald á mótið er kr. 3.000 fyrir félagsmenn, kr. 4.000 fyrir aðra. Eins og áður eru þeir unglingar sem greiða æfingagjald undanþegnir þátttökugjaldi.

Umhugsunartími er 90 mínútur á skákina, auk 30 sekúndna viðbótartíma fyrir hvern leik.

Mótið reiknast til alþjóðlegra og íslenskra skákstiga.

Haustmótið er meistaramót Skákfélags Akureyrar. Núverandi meistari félagsins er Fide-meistarinn Jón Kristinn Þorgeirsson

- Auglýsing -