Skak.is kynnir með stolti Ólympíuhlaðvarpið en þetta er fyrsta innslagið í nýjan lið á síðunni sem nefnist einfaldalega Skákvarpið.
Ólympíuhlaðvarpið er fyrst tilraun til hlaðvarps um skák og verður í gangi á meðan á Ólympíuskákmótinu stendur í Batumi. Stefnan er að vera með þætti á léttu nótunum rétt eftir upphaf hverrar umferðar og fara aðeins yfir málinu hjá íslensku liðunum, stöðuna í mótinu og gang forsetakosninga FIDE.
Ólympíuhlaðvarpið er í umsjón Ingvars Þór Jóhannessonar og Gunnars Björnssonar.
- Auglýsing -
















