FRESTAÐ: Íslandsmót framhaldsskólasveita 2023

    0
    338
    Hvenær:
    21. október, 2023 @ 13:00 – 16:00
    2023-10-21T13:00:00+00:00
    2023-10-21T16:00:00+00:00
    Hvar:
    Mál og menning
    Laugavegur 18
    101 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    Ókeypis
    Tengiliður:
    Skákskóli Íslands
    FRESTAÐ: Íslandsmót framhaldsskólasveita 2023 @ Mál og menning | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Íslandsmót framhaldsskólasveita í skák fer fram laugardaginn 21. október 2023. Mótið fer fram á hinum ígulvinsæla vettvangi, Máli og menningu, við Laugaveg. Mótshaldari er Skákskóli Íslands, sem hefur fengið liðs við sig valinkunna og þrautreynda aðila.

    Mótið hefst kl. 13:00 og er mæting eigi síðar en kl. 12:45.

    Í hverri sveit tefla fjórir einstaklingar. Hver sveit getur valið að hafa einn varamann. Hver framhaldsskóli getur tilkynnt til keppni eins margar skáksveitir og hann kýs og skal þeim þá raðað eftir styrkleika í A, B og C sveit o.s.frv.

    • Allar sveitirnar mætast innbyrðis en ef þær verða fleiri en 10 verða tefldar 7 umferðir eftir svissneska kerfinu
    • Mótið fer fram með fyrirkomulagi atskáka og tímamörk verða 10 05 (10 mínútur á mann og 5 sekúndur bætast við klukkuna eftir hvern leik).

    Keppt er til ýmissa verðlauna. Skólinn sem ber sigur úr býtum fær nýjan farandbikar.

    Þá verður vinsælasti keppandinn valinn og einnig sá best klæddi. 

    Um nánari tilhögun mótsins verður tilkynnt síðar.

    Skráningarfrestur er til miðnættis fimmtudaginn 19. október.

    Í mótsnefnd eru Helgi Ólafsson, Stefán Bergsson og Ingvar Þór Jóhannesson. Fyrirspurnir má senda á: stebbibergs@gmail.com og helol@simnet.is.

    Mótsnefnd áskilur sér rétt til breytinga á boðaðri dagskrá ef brýn þörf krefur.

    - Auglýsing -