Vignir Vatnar Stefánsson (2484) vann sína skák í sjöttu umferðinni en Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2407) laut í dúk í fyrsta skipti á mótinu.
Vignir mætti alþjóðlega meistaranum Savva Vetokhin (2400) sem er Rússi en teflir undir fána FIDE. Vignir hafði svart og upp kom drottingarbragð. Vignir náði að jafna taflið og segja má að eitthvað „juð“ hafi verið í gangi þegar Rússinn einfaldaði taflið kjánalega strax eftir að tímamörkunum var náð. Vignir var þá kominn með aðeins betra tafl.
41.Df5? var slakur þar sem svartur drepur og kóngurinn kemur strax og nær peðinu. Vignir fékk vænlegt hróksendatafl sem hann kláraði vel.
Á sama tíma tapaði Aleksandr gegn búlgarska stórmeistaraum Momchil Petkov (2499) með svörtu. Aleksandr tefldi hraustlega í mótteknu drottningarbragði. Svartur fór í aðgerðir á kóngsvæng en endaði á að fá það í bakið og hvítur hafði betur í miðtaflinu.
Vignir hefur 4,5 vinning af 6 en Sasha hefur nú 3,5 vinning. Efstu menn hafa 5 vinninga.
Í næstu umferð mætir Vignir Norðmanninum efnilega Elham Amar (2541) og hefur hvítt. Aleksandr fær hvítt á aljþóðlega meistarann Cameron McGowan (2161) frá Ástralíu.
Um mótið:
Ísland á tvo fulltrúa á Heimsmeistaramóti 20 ára og yngri í Mexíkó. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2484) er númer 19 í styrkleikaröðinni og Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2407) er númer 36 í styrkleikaröð. Stigahæstur keppenda er hinn umdeildi Hans Moke Niemann (2667) sem hefur verið mikið milli tannanna á fólki undanfarið. Skráðir keppendur eru 149.
Tefldar verða 11 umferðir og er dagskráin eftirfarandi (tímar íslenskir)
- umferð 21. september LOKIÐ
- umferð 22. september LOKIÐ
- umferð 22. september LOKIÐ
- umferð 23. september LOKIÐ
- umferð 24. september LOKIÐ
- umferð 26. september LOKIÐ
- umferð 27. september klukkan 22:00
- umferð 28. september klukkan 22:00
- umferð 29. september klukkan 22:00
- umferð 30. september klukkan 22:00
- umferð 1. október klukkan 16:00
Frídagur er í dag mánudaginn 25. september
- Beinar útsendingar (lichess)
- Beinar útsendingar (chess.com)
- Beinar útsendingar (chess24)
- Chess-Results
- Heimasíða mótsins















