Vignir að tafli. Mynd: Facebook-síða mótsins.

Nú er aðeins ein umferð eftir á Heimsmeistaramóti U20 í Mexíkó. Vignir Vatnar er enn taplaus og vann sína skák í 10. umferð en Aleksandr varð að sætta sig við jafntefli gegn sterkum andstæðingi eftir að hafa haft yfirburðatafl.

Vignir að tafli í Mexíkó Mynd. David Llada

Vignir Vatnar Stefánsson (2484) hafði svart gegn FM Juan Sebastian Melian (2295) frá Paraguay. Vignir jafnaði taflið nokkuð auðveldlega gegn rólegri byrjanataflmennsku hvíts. Vignir fór svo fljótlega að taka öll völd á borðinu og læddi biskup sínum djúpt í herbúðir andstæðingins í 22. leik

Þetta virtist algjörlega brjóta niður baráttuanda Suður-Ameríku mannsins og hann gafst upp aðeins tveimur leikjum síðar með jafnt á liði en vissulega með erfiða stöðu, hálfgerða beyglu eins og það er oft kallað. Einhver smá Fischer í þessu:

I like the moment when I break a man’s ego.

Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2407) hafði hvítt egn slóvakíska alþjóðlega meistaranum Samir Sahidi (2476). Aleksandr fékk mjög álitlegt tafl eftir byrjunina og Samir var í vandræðum.

Lykilstaðan var líklega hér:

Hvítur stendur vel og Aleksandr lék 23.Hg3 og lét reyna á aðgerðir á kóngsvængnum. Svartur náið að sleppa nokkuð vel fljótlega eftir það. 23.De4 hefði hinsvegar landað mikilævgu peði. Hvítur myndar tvöfalda hótun að máta á h7 og að taka c6 peðið.

Taflið einfaldaðist töluvert fljótlega eftir þetta og hróksendataflið steindautt jafntefli.

Vignir hefur nú 7 vinninga af 10 og situr í 12. sæti á stigum. Aleksandr hefur 6 vinninga í 39. sæti. Efstu tveir tefla innbyrðis, franska ungstirnið Marc’andria Maurizzi og „Íslandsvinurinn“ Luka Budisalljevic. Vonir Hans Niemann um að ná í titilinn eru orðnar ansi litlar. Hans þyrfti að vinna í lokaumferðinni og vonast eftir a) jafntefli hjá Maurizzi og Budisaljevic og svo b) súper-heppni þegar kemur að oddastigum.

Í lokaumferðinni fær Vignir hvítt á Jan Subelj (2492) frá Slóveníu. Aleksandr mætti honum með hvítu fyrr í mótinu og gerði jafntefli þannig að þeir ættu eitthvað að geta miðlað upplýsingum um venjur Slóvenans í byrjanavali.  Aleksandr fær svart á Kólumbíumanninn Juan Esteban Cabiativa (2080). Fram til sigurs!

Lokaumferðin er fyrr á ferðinni og hefst klukkan 16:00 í dag.

- Auglýsing -