Evrópukeppni Taflfélaga skipar stóran sess á skákdagatalinu hjá mörgum skákmönnum og hefur verið mjög vinsælt í gegnum árin hjá Íslendingum. Evrópukeppni Taflfélaga er fyrir marga uppáhaldsmótið en þar eiginlega ná menn að sameina allt það sem er skemmtilegt við skákina, góðan félagsskap, skemmtilega mótsstaði og svo það að „amatörar“ fá og ná að tefla á sama stað og sumir af bestu skákmönnum heims.
Í ár eru íslensku liðin þrjú en í fyrra voru heil fjögur lið í Austurríki í mjög skemmtilegu og eftirminnilegu móti! Mótið í ár fer fram í Durres í Albaníu. Íslensku liðin eru Víkingaklúbburinn og Skákfélag Akureyar sem tefla í opnum flokki og Taflfélag Garðabæjar sem teflir í kvennaflokki. Fyrir utan íslensku liðin má benda á að þeir Margeir Pétursson og Óskar Bjarnason tefla með klúbb frá Lúxemborg. Margeir hefur teflt með Taflfélagi Reykjavíkur í keppninni undanfarin ár en TR tók sér frí í ár en koma vonandi sterkir inn að ári!
TG teflir í kvennaflokki eins og áður sagði og varaformaður Skáksambandins, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, fékk vægast sagt óvæntan heiður í fyrstu umferð. Forseti ECU, evrópska skáksambandsins, Zurab Azmaiparashvili lék fyrsta leik EM taflfélaga fyrir hana gegn fyrrum heimsmeistara kvenna, Antoanetu Stefanovu frá Búlgaríu. Fyrir valinu varð kóngspeðið, 1.e4 en það dugði ekki til að þessu sinni.
Andstæðingur TG var vissulega sterkur en þó aðeins 13. stigahæsta sveitin í kvennaflokki. Ástæðan fyrir verunni á sýningarborði og að Azmai lék fyrsta leiknum var auðvitað að sveitin er fulltrúi heimamanna í Albaníu og verða því á „fixed borði“ allt mótið og í beinni útsendingu. Stelpurnar okkar nutu góðs af því í fyrstu umferðinni og fengu verðuga andstæiðnga í beinni.
Jóhanna lenti í smá vandræðum fljótlega eftir byrjunina en Jóhanna beitti tveggja riddara tafli gegn caro-kann vörn Stefanovu. Tölvurnar voru hliðhollar Stefanovu alveg fram í 30. leik en þá hrapaði matið í hið víðfræga 0.0 sem stendur fyrir hnífjafnt og stundum steindautt tafl!
Jóhanna lék hér 30.Bd6? sem tölvurnar gefa sem næstum tveimur peðum betra á svart í mat. 30. H1d7+! er hinsvegar hnífjafnt skv. tölvunum. Eftir 30…Kg6 31.Hxg7+ virðist hvítur halda í horfið. Ef kóngur drepur á g7 kemur …Hb8 og vinnur peð til baka og ef riddari drepur á g7 kemur hvíti kóngurinn á g3 og svartur á enga góða leið til að bæta sína stöðu.
Stefanova gerði ekki frekari mistök og lokaði búðinni eftir þetta. Það er samt magnað hvað margar skákir hafa þetta „moment“ þar sem sá stigahærri fær alltaf sénsinn! Lykillinn virðist vera að hafa trú á því að fá sénsinn og svo að nýta hann!
Albanska sveitin hafði betur 0-4

Næst á dagskrá er sænsk sveit sem er nokkuð sterkari en okkar á pappírnum. Vitað er að mótið verður erfitt, illa gekk að manna fulla sveit en stelpurnar virkilega vildu fara á mótið til að reyna sig. Hildur Berglind hefur lítið teflt undanfarin ár og er því í raun að bjóða sig fram sem fallbyssufóður í jafn sterku móti sem EM taflfélaga er sem er virðingavert. Landsliðskonurnar okkar á fyrsta og öðru borði eru þar af leiðandi að fá mikilvæg verkefni sem ekki hefðu fengist ef ekki hefði náðst að manna sveitina!
Opinn flokkur
Víkingaklúbburinn tefldi niður fyrir sig og vann 4,5-1,5 sigur í fyrstu umferðinni.

Páll Þórarinsson og Gunnar Freyr misstu niður punkta með svörtu, Páll að tefla við andstæðing á svipuðu reiki og Gunnar við rétt tvítugan strák sem hlýtur hreinlega að vera underrated. Heilt yfir góð úrslit.
Skákfélag Akureyrar var í beinni útsendingu. Þeir mættu sterkri tyrkneskri sveit og urðu að lúta í dúk 0-6. Smá vonbrigði, íslensku sveitirnar lenda oft í erfiðum pörunum á þessu móti en „prinsippið“ er að láta ekki núlla sig út!

Slæm úrslit en ekki langt frá eðlilegum úrslitum. Í lið SA vantaði Stefán Bergsson sem tefldi Vegabréfsgambítinn óvarlega á leiðinni út en fletti upp í teóríunni og er betur undirbúinn í tilraun númer tvö!
Rennum yfir viðureign Akureyringana. Rúnar Sigurpálsson var ekkert fjarri því að stríða Vahap Sanal þrátt fyrir að hafa gefið hvítu mennina í forgjöf með 1.a3 og 2.b4! Sanal fékk mjög þægilegt tafl en samt þannig að hann gat ekkert slakað á, of róleg taflmennska hefði líklegast endað með jafntefli.
Þolinmæði Tyrkjans bar ávöxt í 60. leik þegar hann, með svart, fékk þraut: „svartur á leik og mátar í 3 leikjum“ … Tyrkinn leysti þá þraut!
Mustafa Yilmaz er ekki skemmtilegasti skákmaður í heimi en ansi hel#%&i solid!
Yilmaz virtist búast við Grunfeld og valdi mjög pósalegt afbrigði gegn Grunfeld sem Halldór Brynjar teflir eiginlega að staðaldri. Tyrkinn vandaði pottþétt vel undirbúinn. Niðurstaðan varð smá beygla fyrir Halldór sem að þrátt fyrir að vera engu liði undir eftir tuttugu og einn leik var eiginlega leiklaus eftir 22.Had1 þar sem hvítur fær óverjandi gaffal á b6. Framhaldið varð 22…Hc7 23.Hxd7 gefið.
Emre Can (afþökkum Liverpool brandara) fann snaggaralega vinningsleið í snarpri Sikileyjarövrn gegn Arnar Þorsteinssyni.
Eina vinningsleiðin á svart er 26…Hxb3+! sem Can lék. 27.Rxb3 Hxb3+ er því miður tjaldið. Hvítur tapar drottningunni með fráskák eða verður mát.
Í 2. umferð fá Víkingar tækifæri á að hefna fyrir ófarirnar hjá Akureyringum en þeir mæta tyrnesku sveitinni sem fór óblíðum höndum um norðanmennina. Á móti þá fá Akureyringar tækifæri á móti sömu sveit og Víkingaklúbburinn lagði í fyrst umferð…gamli víxl-varíanturinn!
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results (opinn flokkur) | Chess-Results (kvennaflokkur)
- Beinar útsendingar Chess24 (Opinn flokkur)
- Beinar útsendingar Chess24 (Kvennaflokkur)
- Beinar útsendingar lichess (Opinn flokkur)
- Beinar útsendingar lichess (Kvennaflokkur)















