Á laugardaginn fara úrslitin fram í mótaröð Bankans Bistro. Eftir skemmtilegt tímabil þar sem fimm sterk og skemmtileg mót ákvörðuðu hverjir kæmust í úrslit er loks komið að þessu!
Sýnt verður frá öllu mótinu í beinni útsendingu og verða skákskýringar í höndum CAD bræðra & Hödda Magg.
Keppendur eru eftirfarandi í stigaröð:
1. GM Vignir Vatnar Stefánsson (2516)
2. GM Hjörvar Steinn Grétarsson (2508)
3. GM Hannes Hlífar Stefánsson (2501)
4. GM Helgi Áss Grétarsson (2404)
5. IM Jón Viktor Gunnarsson (2391)
6. IM Björn Þorfinnsson (2390)
7. FM Ingvar Þór Jóhannesson (2348)
8. GM Bragi Þorfinnsson (2322)
9. FM Sigurbjörn Björnsson (2267)
10. FM Örn Leó Jóhannsson (2229)
11. Birkir Ísak Jóhannsson (2187)


Fyrirkomulag er eftirfarandi:
11 umferðir (allir við alla) tímamörk 3+2.
Fjórir efstu í mótinu tefla til úrslita.
1-4 sæti – þrjár skákir, þar sem fyrsta sætið fær tvo hvíta.
2-3 sæti, þrjár skákir, þar sem efra sætið fær tvo hvíta.
Armageddon skák ef jafnt.
Sama á við um í úrslitum.
Verðlaun á mótinu eru eftirfarandi:
1. 500.000
2. 300.000
3. 200.000
Dagskrá:
13.30 – Arnar Gunnarsson vs Dagur Ragnarsson Armageddon skák.
14.00 – mótið hefst.
Stutt pása eftir sex umferðir
7-11. umferð.
Stutt pása.
Undanúrslit.
Stutt pása.
Úrslit.
Skákskýringar fara fram á Twitch & Youtube síðu Chess After Dark.
- Mótið á Chess Results: Chess-Results Server Chess-results.com – BANKINN-BISTRÓ GREAT FINALE
- Twitch: chessafterdark – Twitch
- Youtube: Chess After Dark – YouTube
- Linkur á mótið á Chess.com: Icelandic Blitz Championship 2023 – Info – Chess.com


















