Þeir félagar Birkir Hallmundarson og Josef Omarsson nálgast nú lokasprettinn á HM í sínum aldursflokkum í Egyptalandi. Nú er níu umferðum lokið og aðeins tvær eftir. Josef Omarsson teflir í U12 flokknum og Birkir Hallmundarson í U10.
Birkir tapaði í áttundu umferð gegn Damir Bulgak (1596) sem teflir undir fána FIDE en er Rússi. Birkir hafði fram að því verið á góðu skriði og í kringum topp 10 í flokknum. Birkir kom sterkur til baka í níundu umferðinni og vann sigur gegn Dastan Bakytbek (1344) frá Kazakhstan. Í flokki Birkis eru 115 keppendur og er Birkir númer 34 í stigaröðinni. Birkir hefur nú 6 vinninga af 9 og er í 11-22. sæti.
Josef tefldi gegn Rashid Husain Alhammadi (1509) frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Í níundu umferðinni varð niðustaðan svo jafntefli gegn Pairavi Kodin (1519) frá Turkmenistan. Josef hefur aðeins rétt úr kútnum eftir rólega byrjun og hefur nú 4,5 vinning af 9. 92 keppendur er í flokki Josefs sem var númer 46 í styrkleikaröðinni.
Alls verða tefldar 11 umferðir í báðum flokkum en nú er enginn frídagur á mótinu sökum frestunar á fyrstu umferðinni.
Flokkur Jósefs á Chess-Results U12
Flokkur Birkis á Chess-results U10

















