Kristján Örn Elíasson hefur um nokkra mánaða skeið stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.
Í gær mætti Halldór Grétar Einarsson í settið í Skipholtinu. Í kynningu um þáttinn segir:
Halldór Grétar Einarsson FIDE meistari og fyrrverandi varaforseti Skáksambands Íslands kíkti í heimsókn á Útvarp Sögu til Kristjáns Arnar í þátt hans Við skákborðið. Aðalumræðuefni þáttarins var áform Mennta- og barnamálaráðuneytisins um lagasetningu en frumvarp um ný heildarlög í skák hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Ráðuneytið telur að gildandi lög hafi valdið vandkvæðum við túlkun í framkvæmd og að svo virðist sem lögin hafi ekki nægilega tryggt að íslenskir skákmenn nái árangri í greininni. Verði af samþykkt frumvarpsins verða tveir lagabálkar felldir á brott, þ.e. lög um launasjóð stórmeistara í skák, nr. 58/1990 og lög um Skákskóla Íslands, nr. 76/1990, og nýr lagabálkur kemur í þeirra stað. Í áformum ráðuneytisins um lagasetninguna er þess jafnframt getið að ákveðnir þættir í gildandi lögum falli ekki nægilega vel að nútíma stjórnsýsluuppbyggingu og að óvenjulegt sé að ítarleg sjálfstæð löggjöf fjalli um skóla sem rekin er af frjálsum félagasamtökum, þ.e. Skáksambandi Íslands.
Þáttinn má nálgast á Spotify.
Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.


















