EM landsliða fer fram í Budva í Svartfjalllandi 11-20. nóvember. Ísland sendir lið í opnum flokki og kvennaflokki. Fram að móti verða liðsmenn kynntir til leiks hver á fætur og öðrum Í dag kynnum við til leiks liðsstjóra kvennaliðsins Ingvar Þór Jóhannesson
EM-fararnir
- Hjörvar Steinn Grétarsson
- Hannes Hlífar Stefánsson
- Vignir Vatnar Stefánsson
- Guðmundur Kjartansson
- Hilmir Freyr Heimsson
- Olga Prudnykova
- Lenka Ptácníková
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
- Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
- Lisseth Acevedo Mendez
- Helgi Ólafsson (liðsstjóri)
- Ingvar Þór Jóhannesson (liðsstjóri)
Nafn?
Ingvar Þór Jóhannesson
Borð?
Fæ vonandi stól en ekki borð sem liðsstjóri kvennaliðsins
Hver kenndi þér að tefla og hvað varstu gamall/gömul?
Man það hreinlega ekki nógu vel. Hef líklegast verið 8-9 ára en karl faðir minn líklegast kennt mér mannganginn. Man þó að ég elti náfrænda minn Kjartan Maack í Taflfélagið en hann hóf taflmennsku á undan mér enda var hann í Æfingaskólanum þar sem margir góðir skákmenn hafa alið manninn.
Uppáhaldsskákmaður?
Mér finnst skemmtilegast að fylgjast með Carlsen tefla. Uppáhaldsskákmenn hafa samt verið margir í gegnum tíðina Karpov, Kramnik og svo eru auðvitað gaman að skoða íslensku skákmennina, hef mest skoðað Ólafssynina tvo og Jóhann Hjartarson.
Hvernig er þínum undirbúningi háttað fyrir EM landsliða?
Reyna að vera sem best að mér í þeim byrjunum sem liðsmenn tefla svo ég verið að einhverju gagni við undirbúning skáka.
Hluti af hvaða landi var Svartfjallaland áður en það hét bara Svartfjallaland? (bannað að nota Google!).
Svartfjallaland var áður Serbía & Svartfjallaland (e. Serbia and Montenegro).
Hversu oft hefur þú farið á EM landsliða?
Fór í fyrsta skiptið 2005 í Gautaborg, var liðsstjóri hér í Reykjavík 2015 og svo á Krít 2017 og Batumi 2019 með karlaliðinu. Átti að fara síðast til Slóveníu 2021 en fékk covid rétt fyrir mót. Þetta er þá fimmta skiptið núna
Hvaða lönd eiga landamæri að Svartfjallandlandi (Google bannað!!) – Vísbending: Landið á landamæri að fimm löndum.
Serbía (hlýtur að vera), Albanía (tók þátt á EM taflfélaga einu sinni í Svartfjallalandi og þá keyrðum við yfir) restin er svo bara gisk. Segi Kosóvo, Bosnía og Makedónía
Hver verður fyrsti áskorandi Ding Liren?
Ég held það verði Caruana miðað við skriðinn á honum núna. Hinsvegar er það oft þannig að menn sem koma af of miklum þunga inn á Áskorendamótið standa sig ekki þar, sbr. Aronian fyrir nokkrum árum.
Hvað heitir núverandi heimsmeistari kvenna (Google bannað!)
Ju Wenjun heitir hún.
Hver er þín skrautlegasta sigurskák?
Það eru kannski tvær sem koma fyrst upp í hugann. Sú fyrri var gegn Birni Þorfinnssyni árið 2007 á Fiskmarkaðsmótinu, alltaf skemmtilegar skákir hjá okkur…sem er yfirleitt Bjössa að þakka!
Bjössi lék í þessari skák líklega flottasta leik sem ég hef fengið á mig. Ég hélt ég væri að snúa á hann og hann átti leik hér eftir 20.d4
Ég taldi mig hafa allt undir stjórn en hér lék Bjössi drottningu sem var í uppnámi af peði yfir á annan reit þar sem hún er í uppnámi af peði. 20…Df5!! stórkostlegur leikur og svartur stendur til vinnings. Restin af skákinni var ég svo bara að reyna að finna leiki sem töpuðu ekki þráðbeint og náði að hanga á lífi nógu lengi til að grísa á skiptamunsfórn sem gerði svartan allt í einu óverjandi mát.
Hin sem kemur upp í hugann er skák gegn Bjarna Hjartarsyni á Skákþingi Reykjavíkur árið 2010. Ég tefldi þessa skák eins og algjör flóðhestur og var með koltapað tafl þegar ég lék algjörum „desperado“ leik. Bjarni tók hrók minn á e1 með vitlausum manni og staurbrá svo þegar ég mátaði í einum leik, líklega eini góði leikurinn sem ég lék alla skákina!
Hver eru þín markmið á mótinu?
Fá ekki matareitrun
Áfram?
West Ham og lifi Þróttur


















