UM ungmenna (u14-u18) fer fram í Montesilvano á Ítalíu dagana 13.-24. nóvember. Hvorki meira né minna en 12 íslensk ungmenni taka þátt. Fram að móti verða íslensku fulltrúarnir kynntir til leiks – 3-4 á dag!
Við hefjum leik á Markúsi Orra Jóhannssyni sem er tefla á sínum fyrsta slíka móti.
HM-fararnir
- FM Aleksandr Domalchuk-Jonasson (u18)
- Benedikt Briem (u18)
- Benedikt Þórisson (u18)
- Þorsteinn Jakob F Þorsteinsson (u18)
- Ingvar Wu Skarphéðinsson (u16)
- Adam Omarsson (u16)
- Iðunn Helgadóttir (u16)
- Mikael Bjarki Heiðarsson (u14)
- Matthías Björgvin Kjartansson (u14)
- Markús Orri Jóhannsson (u14)
- Markús Orri Óskarsson (u14)
- Guðrún Fanney Briem (u12)
- FM/FT Björn Ívar Karlsson (Fararstjóri og þjálfari)
- Gauti Páll Jónsson (Fararstjóri og þjálfari)
Nafn
Markús Orri Jóhannsson
Flokkur?
U14
Hver kenndi þér að tefla og hvað varstu gamall/gömul
Ég lærði að tefla heima hjá vini mínum fimm ára gamall en fór svo að æfa skák 8 ára, fyrst hjá Lenku í Háteigsskóla.
Uppáhaldsskákmaður?
Vignir Vatnar Stefánsson
Hvernig er þínum undirbúningi háttað fyrir HM ungmenna?
Reyni að tefla á sem flestum mótum í haust, tefli og stúdera heima líka og fer á æfingar í Breiðablik og Skákskólanum.
Besta skákin (endilega senda í PGN)
Veit ekki hvort þetta er sú besta en það var gaman að vinna Arnar
Hver eru þín markmið á mótinu?
Enda ofar en starting rank segir til um
Eitthvað að lokum?
Áfram Ísland!
















