UM ungmenna (u14-u18) fer fram í Montesilvano á Ítalíu dagana 13.-24. nóvember. Hvorki meira né minna en 12 íslensk ungmenni taka þátt. Fram að móti verða íslensku fulltrúarnir kynntir til leiks – 3-4 á dag!
Nú er kynntur til leiks Mikael Bjarki Heiðarsson sem teflir í u-14 flokknum.
HM-fararnir
- FM Aleksandr Domalchuk-Jonasson (u18)
- Benedikt Briem (u18)
- Benedikt Þórisson (u18)
- Þorsteinn Jakob F Þorsteinsson (u18)
- Ingvar Wu Skarphéðinsson (u16)
- Adam Omarsson (u16)
- Iðunn Helgadóttir (u16)
- Mikael Bjarki Heiðarsson (u14)
- Matthías Björgvin Kjartansson (u14)
- Markús Orri Jóhannsson (u14)
- Markús Orri Óskarsson (u14)
- Guðrún Fanney Briem (u12)
- FM/FT Björn Ívar Karlsson (Fararstjóri og þjálfari)
- Gauti Páll Jónsson (Fararstjóri og þjálfari)
Nafn
Mikael Bjarki Heiðarsson
Flokkur?
U14 opinn flokkur
Hver kenndi þér að tefla og hvað varstu gamall/gömul
Einar, skákkennari í Vatnsendaskóla kenndi mér að tefla þegar ég var 5 ára gamall.
Uppáhaldsskákmaður?
Hikaru Nakamura
Hvernig er þínum undirbúningi háttað fyrir HM ungmenna?
Ég fer vel yfir allar byrjanir, tefli mikið. Svo reyni ég að ná inn hreyfingu fyrir hverja skák og passa upp á að næra mig vel og sofa vel.
Besta skákin (endilega senda í PGN)
Mikael-Adam
Hver eru þín markmið á mótinu?
Markmið mín á HM eru að vera með svipað rating performance og stigin mín segja til um.
Eitthvað að lokum?
Áfram Ísland!

















