Eitt allra sterkasta og fjölmennasta skákmót landsins fer fram laugardaginn nk.  Mótið hefst kl. 13 og stendur til um verða kl. 16:30. 

Um er að ræða Friðriksmót Landsbankans – Íslandsmótið í hraðskák. Tæplega 100 keppendur eru skráðir til leiks og hafa aldrei verið fleiri. Vegna örfára afskráningunar er tímabundið opið aftur fyrir nýskráningar. Fyrstir koma fyrstir fá. 

Teflt er heiðurs Friðriki Ólafssyni, fyrsta íslenska stórmeistaranum. Mótið fer fram í 20. skipti. Fyrsta mótið var haldið árið 2004. Mótið hefur ávallt farið fram í útibúinu í Austurstræti þar til nú með einni undantekningu, þ.e. árið 2020 þegar mótið fer fram á netinu vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar.

Mótið fer fram í fyrsta skipti í nýjum höfuðstöðvum bankans, Reykjarstræti 6,  Óhætt er að lofa glæsilegum aðstæðum fyrir keppendur og áhorfendum sem eru sérlega velkomnir á staðinn. Það verða góðar aðstæður fyrir þá til að fylgjast með helstu skákmönnum landsins. Sem langflestir taka þátt.

Má þar nefna nýjasta stórmeistara Íslands og Íslandsmeistarann í skák, Vigni Vatnar Stefánsson, Jóhann Hjartarson, Helga Ólafsson, Braga Þorfinnsson, Þröst Þórhallsson og Helga Áss Grétarsson en sá síðarnefndi er núverandi Íslandsmeistari í hraðskák og hefur því titil að verja.   

Níud skákkonur taka þátt og hafa aldrei verið fleiri. Nánast allar sterkustu skákkonur landsins taka þátt og má þar nefna Jóhönnu Björg Jóhannsdóttur, Lenku Ptácníkovu og Guðlaugu Þorsteinsdóttur.

Tefldar eru 13 umferðir með tímamörkunum 3+2 (Þrjár mínútur auk tveggja viðbótarsekúnda á hvern leik).

FYRRI SIGURVEGARAR

  • 2022 – Helgi Áss Grétarssson
  • 2021 – Helgi Ólafsson
  • 2020 – Hjörvar Steinn Grétarsson
  • 2019 – Jón Viktor Gunnarsson
  • 2018 – Jóhann Hjartarson
  • 2017 – Hannes Hlífar Stefánsson
  • 2016 – Jóhann Hjartarson
  • 2015 – Þröstur Þórhallsson
  • 2014 – Héðinn Steingrímsson
  • 2013 – Helgi Ólafsson
  • 2012 – Bragi Þorfinnsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Jón Viktor Gunnarsson
  • 2011 – Henrik Danielsen
  • 2010 – Jón Viktor Gunnarsson og Þröstur Þórhallsson
  • 2009 – Héðinn Steingrímsson
  • 2008 – Helgi Ólafsson
  • 2007 – Héðinn Steingrímsson
  • 2006 – Helgi Áss Grétarsson
  • 2005 – Jón Viktor Gunnarsson og Arnar E. Gunnarsson
  • 2004 – Jóhann Hjartarson og Stefán Kristjánsson
- Auglýsing -