Þrír efstu menn á Íslandmsót öldunga 2023

Íslandsmót öldunga 2024 (65+) fer fram í húsnæði Siglingafélagsins Ýmis í Kópavogi, samhliða Íslandsmóti kvenna, dagana 5.-11. febrúar nk.

Keppnisrétt eiga allir skákmenn 65 ára og eldri (fæddir 1959 eða fyrr).

Þátttökugjöld eru kr. 7.500

Stefnt er á að tefldar verði 7 umferðir, Endanleg ákvörðun um fyrirkomulag og umferðarfjölda verður tekin að loknum skráningarfresti.

Upplýsingar um Íslandsmót 50 ára og eldri

Umferðartafla

Með fyrirvara um fjölda keppenda.

  1. Mánudagurinn, 5. febrúar, kl. 18
  2. Þriðjudagurinn, 6. febrúar, kl. 18
  3. Miðvikudagurinn, 7. febrúar, kl. 18
  4. Fimmtudagurinn, 8. febrúar, kl. 18
  5. Föstudagurinn, 9. febrúar, kl. 18
  6. Laugardagurinn, 10. febrúar, kl. 13
  7. Sunnudagurinn, 11. febrúar, kl. 13

Tímamörk verða 90+30 auk 15 mínútna eftir 40 leiki

Verðlaun

  1. 50.000 kr.
  2. 30.000 kr.
  3. 20.000 kr.

Verðlaun skiptast jafnt séu fleiri en jafnir í verðlaunsætum. Verði tveir eða fleiri efstir og jafnir verður teflt til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn með styttri tímamörkum.

Skráningarfrestur er til 31. janúar kl. 23:59

- Auglýsing -