Mikið hefur verið um óvænt úrslit á Skákþingi Reykjavíkur og að loknum sex umferðum eru fjórir efstir og jafnir. Stór pakki er svo í 5-19. sæti vinningi á eftir efstu mönnum. Efstu menn fyrir umferðina, Gauti Páll Jónsson og Dagur Ragnarsson gerðu jafntefli innbyrðis en þeir Ingvar Wu Skarphéðinsson og Bárður Örn Birkisson blönduðu sér í baráttuna með því að leggja sína andstæðinga að velli.

Skák Gauta og Dags varð lengsta skák umferðarinnar. Dagur fékk fljótlega þægilegra tafl úr Caro-kann með svörtu. Hann hafði biskupaparið og vann peð. Gauti gaf sig ekki og vann peðið til baka. Eftir drottningarkaup var líklega allur þróttur úr stöðunni. Semja hefði mátt um jafntefli í ca. 60. leik en einhverra hluta vegna komst skákin í 140 leiki þrátt fyrir að ógna því aldrei að fara millimeter út fyrir 0.00 mat! Þeir hafa greinilega svona rosalega gaman af því að tefla strákarnir!

Gríðarlega óvænt tíðindi urðu á öðru borði þar sem Ingvar Wu lagði landsliðsmanninn Hilmi Frey Heimisson að velli. Hilmir náði aldrei almennilegum slagkrafti í sínar aðgerðir og Ingvar tefldi traust. Ingvar hafði í raun betra ef eitthvað er í miðtaflinu en Hilmir lék svo af sér í endataflinu.

Hér ætti 56…Hb6 að vera í lagi en 56…Hb7? var kæruleysi. Ingvar gat skákað á h8 og drepið á e6 og gerði það! Niðurstaðan unnið hróksendatafl sem Ingvar kláraði.

Sóknaraðgerðir Lenku gegn Bárði virtust vera að renna út í sandinn og Bárður að fá betra tafl þegar afleikurinn kom.

31.De5?? skildi drottninguna eftir í einskismannslandi eftir 31…He8

Helstu úrslit 6. umferðar

Aðrar skákir á efstu borðum enduðu með jafntefli. Björn Hólm líklegast ásáttur að gera sér ekki mat úr umframpeði gegn Jóhanni Ingvasyni.

Dagur Bárður, Ingvar Wu og Gauti efstir með 5 vinninga og svo rosalegur pakki þar á eftir í 5-19. sæti.

Sjöunda umferðin fer fram næstkomandi sunnudag.

- Auglýsing -