Olga og Lenka er stigahæstar keppenda.

Íslandsmót kvenna 2024 fer fram í húsnæði Siglingafélagsins Ýmis í Kópavogi, dagana 5.-11. febrúar nk.

Teflt verður í tveimur flokkum. Annars vegar í landsliðsflokki kvenna. Þar eiga keppnisrétt allar skákkonur sem hafa náð 1600 skákstigum eða meira. Sigurvegarinn hlýtur sæmdarheitið Íslandsmeistari kvenna árið 2024. Hins vegar í áskorendaflokki. Hann er opin fyrir allar skákkonur sem ekki hafa náð 1600 skákstigum. Sá flokkur hefst á laugardaginn

LANDSLIÐSFLOKKUR KVENNA

Átta skákkonur taka þátt og teflar 7 umferðir – allar við alla.

Í fyrstu umferð sem hefst kl. 18 mætast

  • Iðunn Helgadóttir (1636) – Guðrún Fanney Briem (1587)
  • Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (1990) – Olga Prudnykova (2241)
  • Elsa María Kristínardóttir (1860) – Lenka Ptácníková (2082)
  • Tinnna Kristín Finnbogadóttir (1831) – Veronika Steinunn Magnúsdóttir (1710)

Olga hefur titil að verja.

Umferðartafla

  1. Mánudagurinn, 5. febrúar, kl. 18
  2. Þriðjudagurinn, 6. febrúar, kl. 18
  3. Miðvikudagurinn, 7. febrúar, kl. 18
  4. Fimmtudagurinn, 8. febrúar, kl. 18
  5. Föstudagurinn, 9. febrúar, kl. 18
  6. Laugardagurinn, 10. febrúar, kl. 14
  7. Sunnudagurinn, 11. febrúar, kl. 14

Tímamörk verða 90+30 auk 15 mínútna eftir 40 leiki

Verðlaun

  1.    150.000 kr.
  2.      90.000 kr.
  3.      60.000 kr.

Íslandsmeistari kvenna í skák fær keppnisrétt í landsliðsflokki Skákþings Íslands árið 2025 og keppnisrétt í Ólympíuskákmótinu í Búdapest í september 2024.

Verðlaun skiptast jafnt séu fleiri ein jöfn í verðlaunsætum. Verði tvær eða fleiri efstar og jafnir verður teflt til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn með styttri tímamörkum.

Skráningarfrestur er til 31. janúar kl. 23:59

ÁSKORENDAFLOKKUR KVENNA

Allar skákkonur með minna en 1600 skákstig hafa keppnisrétt.

Verður teflt um helgina 10-11. febrúar. Tefldar verða sex umferðir og hefst taflmennska kl. 11 báða dagana.

Tímamörk verða 30+30

Verðlaun

  1. Úttekt í Skákbúðinni upp á kr. 20.000
  2. Úttekt í Skákbúðinni upp á kr. 15.000
  3. Úttekt í Skákbúðinni upp á kr. 10.000

Skráningarfrestur er til 8. febrúar kl. 23:59

- Auglýsing -