Reykjavíkurskákmótið 2024, sem er boði Kviku eignastýringar og Brims, hefst í dag föstudaginn 15. mars kl. 15 í Hörpu. Lesandi góður – þú ert velkominn!
Rúmlega 400 keppendur frá 50 löndum taka þátt og þar af tæplega 30 stórmeistarar. 90 Íslendingar taka þátt.
Pawel Bartoszek frá menningar, íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkurborgar setur mótið fyrir hönd borgarinnar.
Mótið nú!
27 stórmeistarar taka þátt. Sjö þeirra eru íslenskir. Þar má nefna Vigni Vatnar Stefánsson, Íslandsmeistara í skák, Jóhann Hjartarson og Hannes Hlífar Stefánsson sem hefur unnið mótið fimm sinnum – oftast allra.
Stigahæstur keppenda er Rúmeninn Bogdan-Daniel Deac. Þekktastur keppenda er hins vegar úkraínska goðsögnin Vasyl Ivanchuk.
Margar þekktar skákkonur taka þátt og má þar nefna að sex af 50 sterkustu skákkonum taka þátt. Stigahæst þeirra er hin kínverska Jiner Zhu. Indverska drottningin Tania Sachdev, sem er eitt af andlitum Red Bull, lætur sig ekki vanta. Það gerir heldur ekki ein af Evrópumeisturum Búlgaríu, Nurgyul Salimova, sem er ein af átta skákkonum sem tefla um réttinn um tefla næsta heimsmeistaraeinvígi.
Allnokkrar samfélagsstjörnur skákheimsins mæta á staðinn og þeirra þekktastar eru kanadísku Botez-systurnar Alexandra og Andrea og hin sænska Anna Cramling.
Að lokum viljum við benda á Bodhana Sivanandan, ensk stúlka fædd 2015, og er að margra mati einn efnilegasti skákmaður allra tíma. Kominn með 2088 skákstig þrátt fyrir ungan aldur. Fylgist með henni
Nánar um mótið
Umferðir hefjast yfirleitt kl. 15. Boðið verður upp á skákskýringar alla daga í Hörpu og hefjast þær um tveimur tímum eftir upphaf umferðar eða um kl. 17. Um skákskýringar sjá okkar fremstu skákmenn af þeim sem ekki taka þátt í mótinu að þessu sinni.
Ítarlegur fréttaflutningur frá mótinu verður alla daga á Skák.is
Alls konar sérviðburðir verða í gangi allan tímann!
Skákveisla framundan!
















