Það vill oft verða þannig að fyrstu umferðirnar á opnu mótum fara meira og minna eftir bókinni. Fyrsta umferðin á Reykavíkurskákmótinu var ekki mikil undantekning í þeim efnum. Fyrir utan einstaka jafntefli þurfti að fara alla leið niður á 65. borð til að finna óvænt úrslit. Þar lagði Færeyingurinn Rani Baldursson (1989) Englendinginn John Pigott (2326) að velli.
Óvæntu úrslitin hefðu átt að vera aðeins ofar en heilladísirnar reyndust heldur betur hliðhollar norska alþjóðlega meistaranum Benjamin Haldorsen.
Þrátt fyrir að hafa leikið 47.De3 þá tókst Timofeii Krassel sem teflir undir fána FIDE ekki að finna 48.Dxg5! sem er tiltöulega einfaldur vinningur. Mátið á h8 þýðir að svartur tapar liði. Þess í stað kom 48.Hb1?? sem er aftur orðið unnið á svart þar sem 48…Hh6 setur hvíta kónginn í stórhættu. Norðmaðurinn vann. Í lokin var hálf fyndið að fylgjast með keppendum, báðir voru hristandi hausinn sársvekktir. Norðmaðurinn vafalítið ósáttur með eigin taflmennsku þrátt fyrir „grísinn“ og sá rússneski að gráta það sem hefði getað orðið.
Efstu borðin sluppu nokkuð klakklaust í gegnum umferðina eins og áður sagði. Deac á efsta borði og Ivanchuk unnu góða sigra og Kínverjinn Xu leit vel út. Jules Moussard vann einnig á fjórða borði en þar mætti hann Birni Hólm sem fær sérstakt prik fyrir klæðaburð!

Það voru aðeins stórmeistararnir Matthieu Cornette frá Frakklandi og Krzyanowski frá Póllandi sem misstu niður jafntefli af stigahæstu stórmeisturnum.
Umferðin gekk nokkuð slysalaust fyrir sig hjá stigahæstu íslensku keppendunum. Það voru aðeins þeir Hannes Hlífar Stefánsson og Jóhann Hjartarson sem misstu niður jafntefli. Jafntefli Jóhanns fór þó ekki út fyrir landssteinana þar sem Lenka Ptacnikova var hinumegin við borðið!

Jóhann var við það að snúa á Lenku þegar hann missti þráðinn.
31.Dh8+?? var lélegur þar sem í boði var 31.Hxf7 Kxf7 32.Df4+ eftir 31…Ke7 32.Hxf7+ Kxf7 33.Dxh7+ kom tapleikur 33…Kf6?? í stað 33…Kf8 sem er jafntefli.
Jóhann skilaði vinnignum til baka með 34.Dh6+?? og Lenka slapp þar sem 34.Dh4+ vinnur. Hvítur nær að skáka á g3 eða f4 og hrókurinn á c7 fellur. Lítið var hægt að gera eftir þetta og þráleikur í 50. leik var niðurstaðan.
Önnur góð úrslit hjá Íslendingunum voru t.d. jafntefli Guðna Stefáns Péturssonar (1983) gegn alþjóðlega meistaranum Elliot Papadiamandis (2302), Adam Omarsson (1976) með jafntefli gegn alþjóðlega meistaranum Cristiano Manish Anto (2286).

Þau Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir og Stefán Arnalds fengu að njóta sín í netheimum en þau mættu andstæðingum sem voru að sýna beint frá sínum skákum. Hallgerður mætti Önnu-Mæju Kazarian en Stefán mætti Tallulah Roberts.

Hallgerður laut í dúk en Stefán náði í góðan sigur. Tallulah mætir Pétri Jóhannessyni á morgun en Pétur átti fína skák framan af gegn þýskum andstæðingi í dag.

Streymararnir sýndu mismunandi takta. „Skáknjörðurinn“ Zachary Saine (2010) lék illa af sér gegn skeinuhættri ungri kínverskri skákkonu sem vert er að fylgjast með, Lu Miaoyi (2392). 11.a3?? var ekki til útflutnings.
11…e4! og hvítur gafst upp.

Alexandra Botez (1986)náði heldur að halda uppi heiðri áhrifavaldanna þegar hún lagði alþjóðlega meistarann Karsten Jan (2323) að velli. Skákin var sviptingasöm en Alexandra sýndi að hún kann alveg að tefla!
Fyrsti sigur hennar gegn 2300+!
ALEXANDRA BOTEZ BEATS A 2300 PLAYER FOR THE FIRST TIME IN HER CAREER!!!!!!!!!! ????????????https://t.co/CxXLETN1r7
????: https://t.co/JjJCUJUrZF#chess #womeninchess https://t.co/F0szLNqiVu pic.twitter.com/1cQdbAcLSv— Women's Chess Coverage (@OnTheQueenside) March 15, 2024

Nokkra athygli vakti þegar hinn sænski Galperin beitti vafasamri byrjun „Kúnni“ (e.The Cow) gegn upphafsmanneskju þeirrar byrjunar, Önnu Cramling. Galperin hafði betur en Anna beit þó frá sér!
Helstu úrslit 1. umferðar:

Í 2. umferð sem fram fer í fyrramálið mætir Alekandr Domalchuk-Jonasson á efsta borð og mætir stigahæsta manni mótsins, Bogdan-Daniel Deac (2690). Jules Moussard fær annan Björninn í röð, að þessu sinni Björn Þorfinnsson. Dagur Ragnarsson mætir „Kúabóndanum“ Galperin og Sigurbjörn Björnsson mætir fyrrum sigurvegara mótsins, Adhiban.
Myndaalbúm 1. umferðar (Hallfríður Sigurðardóttir)
Hægt er að sjá skákir með 15 mínútna töf á eftirfarandi stöðum:
Fjöldi streymara/áhrifavalda eru mætt til leiks eins og í fyrra að sína frá sínum skákum.
- Anna Cramling sýnir á Twitch og Youtube þar sem Pia Cramling skýrir.
- Botez systurnar Alexandra og Andrea eru líka beint á Twitch og á Youtube og Jon Ludvig Hammer er að lýsa.
- WGM Dina Belenkaya er á Twitch og á Youtube og vinkona hennar Julesgambit lýsir
- Zachary Saine „The Chessnerd“ er á Twitch
- Tallulah Roberts „Lularobs“ er á Twitch
- Anna-Maja Kazarian er á Twitch og á Youtube
- Alexandra Prado er á Twitch
















