Björn Hólm - Svona mæta menn á sviðið!

Reykjavíkurskákmótið, sem er í boði Kviku eignastýringar og Brims, verður framhaldið í dag með 2. og 3. umferð. Fyrri umferð dagsins hefst kl. 9 en sú síðari kl. 16.

Tveir Íslendingar eru á pallinum í fyrri umferð dagsins. Aleksandr Domalchuk-Jonasson, sem teflir við stigahæsta keppenda mótsins Bogdan-Daniel Deac og Björn Þorfinnsson sem teflir við þriðja stigahæsta skákmann Frakka, Jules Moussard 

Helstu viðureignir Íslendinga í 2. umferð eru:

Frá og með þriðju umferð hefjast svo skákskýringar sem verða í umsjón Helga Áss Grétarssonar. Gera má ráð fyrir að þær hefjist um kl. 18.

Rétt er að minná á veitingastaðinn Hnoss sem er með sértlboð fyrir skák- og skákáhugamenn. Ljúffengt kvöldverðartilboð á milli 18 og 20 á 3.990 kr. og drykkir á skák-tilboði.

Um kvöldið fer svo fram pöbbkvissið í umsjón Ingvars Þórs hefst kl. 21:45. Nánar um það í sérfrétt síðar í dag!

Að lokum minnum við fræðslufundi SÍ á morgun. Nánar í sérfrétt. 

Fjöldi streymara/áhrifavalda eru mætt til leiks eins og í fyrra að sína frá sínum skákum.

- Auglýsing -