Sterkustu skákmenn alþjóðlega Reykjavíkurskákmótsins misstu ansi margir niður vinninga á efstu borðunum í 2. umferð. Margir af þessum hálfu punktum fóru til íslenskra skákmanna.

Aleksandr Domalchuk-Jonasson var með stigahæsta mann mótsins, Bogdan-Daniel Deac gjörsmalega í köðlunum, peði yfir en sá rúmenski reyndist háll sem áll í vörninni og náði jafntefli.

Björn Þorfinnsson var eins og Deac í köðlunum en reyndist háll sem áll og náði jafntefli gegn Jules Moussard.

Sigurbjörn Björnsson náði frábæru jafntefli gegn Adhiban, fyrrverandi sigurvegara Reykjavíkurskákmótins. Adhiban var nokkrum peðum yfir en Sgurbjörn náði heiftarlegu mótspili í tvöföldu hróksendatafli sem þvingaði Indverjann í að þrátefla!

Einhver seigla var í Íslendingunum því Dagur Ragnarsson náði líka jafntefli eftir að hafa haft tapað tapl gegn GM Galperin Platon. 52…Ke6?? var mögulega ekki besti leikurinn í stöðunni!

Dagur svaraði með 53.Hxd5 og jafnteflið tryggt!

Héðinn, Vignir, Hilmir Freyr, Bragi Þorfinnsson, Guðmundur Kjartansson og Þröstur Þórhallsson hafa 2 vinninga af 2 úr efri pörunarhópnum. Verónika Steinunn Magnúsdóttir, Hrund Hauksdóttir og Josef Omarsson eru svo að standa sig vel í neðri hópnum, einnig með 2 vinninga af 2 mögulegum!

Spennan magnast í þriðju umferð sem hefst klukkan 16:00

Hægt er að sjá skákir með 15 mínútna töf á eftirfarandi stöðum:

Fjöldi streymara/áhrifavalda eru mætt til leiks eins og í fyrra að sína frá sínum skákum.

- Auglýsing -