Hannes Frímann forstjóri Kviku eignastýringar lék fyrsta leikinn í gær. Mynd: Halla

Reykjavíkurskákmótið, sem er í boði Kviku eignastýringar og Brims, verður framhaldið í dag með 4. umferð.  Umferð dagsins hefst kl. 15.

Stórmeistarinn Héðinn Steingrímsson (2477) er fulltrúi Íslendinga á pallinum í dag. Teflir við serbnesku landsliðskonuna Teodoru Injac (2434). Eftirfarandi viðureignir Íslendinga eru í beinni í dag.

 

Skákskýringar í boði okkar sterkustu manna eru í Hörpu og hefjast um kl. 17 í dag.

Rétt er að minná á veitingastaðinn Hnoss sem er með sértlboð fyrir skák- og skákáhugamenn. Ljúffengt kvöldverðartilboð á milli 18 og 20 á 3.990 kr. og drykkir á skák-tilboði.

Harpa Blitz fer fram og hefst kl. 20:45. Hægt að skrá sig á staðnum fyrir umferð og á meðan umferð stendur. Skráningu í mótið lýkur kl. 20:30.  Leggja má inn kr. 2.300 kr. á reikning 101-26-12763, kt. 580269-5409. Mikilvægt er að koma fram fyrir hvern er fyrir að greiða og best að hafa FIDE-ID í skýringu.  Lokafrestur með millifærslu er kl. 20:00.

Að lokum minnum við fræðslufundi SÍ sem hefst kl. 11. Nánar í sérfrétt. 

Fjöldi streymara/áhrifavalda eru mætt til leiks eins og í fyrra að sína frá sínum skákum.

- Auglýsing -