Reykjavíkurskákmótið, sem er í boði Kviku eignastýringar og Brims, verður framhaldið í dag með 4. umferð. Umferð dagsins hefst kl. 15.
Stórmeistarinn Héðinn Steingrímsson (2477) er fulltrúi Íslendinga á pallinum í dag. Teflir við serbnesku landsliðskonuna Teodoru Injac (2434). Eftirfarandi viðureignir Íslendinga eru í beinni í dag.
Skákskýringar í boði okkar sterkustu manna eru í Hörpu og hefjast um kl. 17 í dag.
Rétt er að minná á veitingastaðinn Hnoss sem er með sértlboð fyrir skák- og skákáhugamenn. Ljúffengt kvöldverðartilboð á milli 18 og 20 á 3.990 kr. og drykkir á skák-tilboði.
Harpa Blitz fer fram og hefst kl. 20:45. Hægt að skrá sig á staðnum fyrir umferð og á meðan umferð stendur. Skráningu í mótið lýkur kl. 20:30. Leggja má inn kr. 2.300 kr. á reikning 101-26-12763, kt. 580269-5409. Mikilvægt er að koma fram fyrir hvern er fyrir að greiða og best að hafa FIDE-ID í skýringu. Lokafrestur með millifærslu er kl. 20:00.
Að lokum minnum við fræðslufundi SÍ sem hefst kl. 11. Nánar í sérfrétt.
Fjöldi streymara/áhrifavalda eru mætt til leiks eins og í fyrra að sína frá sínum skákum.
- Anna Cramling sýnir á Twitch og Youtube þar sem Pia Cramling skýrir.
- Botez systurnar Alexandra og Andrea eru líka beint á Twitch og á Youtube og Jon Ludvig Hammer er að lýsa.
- WGM Dina Belenkaya er á Twitch og á Youtube og vinkona hennar Julesgambit lýsir
- Zachary Saine „The Chessnerd“ er á Twitch
- Tallulah Roberts „Lularobs“ er á Twitch
- Anna-Maja Kazarian er á Twitch og á Youtube
- Alexandra Prado er á Twitch

















