Hið árlega Pub Quiz Reykjavíkurskákmótsins fór fram í gærkvöldi í Hörpu. Sem fyrr var það Ingvar Þór Jóhannesson sem sá um spurningar en hann hefur séð um kvissið í yfir áratug.

Sem endranær voru á dagskránni 30 spurningar um ýmislegt skáktengt.

Sigursveitin sem nefndi sig „Diettmar Kolbus“ var skipuð þeim: Vigni Vatnari Stefánssyni, Davíð Kolka og Alexander Oliver Mai. Þeir fengu 25 stig af 30 mögulegum! Í öðru sæti varð önnur íslensk sveit.

Hægt er að nálgast bara spurningarnar hér fyrir þá sem vilja spreyta sig.

Hér er svo hægt að sjá spurningarnar með svörum.

- Auglýsing -