Reykjavíkurskákmótið, sem er í boði Kviku eignastýringar og Brims, verður framhaldið í dag með með 8. umferð sem hefst kl. 15.

Fjórir Íslendingar eru meðal þeirra 17 keppenda sem eru í skitpu öðru sæti. Það eru stórmeistararnir Guðmundur Kjartansson (2465), Héðinn Steingrímsson (2477) Jóhann Hjartarson (2460) og Hannes Hlífar Stefánsson (2481).  Efstur er Kasakinn Alisher Suleymenov (2506).

Staðan

Eftirfarandi Íslendingar eru í beinni í áttundu og næstsíðustu umferð.

Skákskýringar Helga Áss Grétarssonar hefjast um kl. 17.

Rétt er að minná á veitingastaðinn Hnoss sem er með sértlboð fyrir skák- og skákáhugamenn. Ljúffengt kvöldverðartilboð á milli 18 og 20 á 3.990 kr. og drykkir á skák-tilboði.

Fjöldi streymara/áhrifavalda eru mætt til leiks eins og í fyrra að sína frá sínum skákum.

- Auglýsing -