Þrátt fyrir að ellefu skákmenn hafi hafið leik efstir og jafnir að loknum sex umferðum þá fækkaði þeim niður í aðeins einn skákmann eftir sjö! Flest efstu borðin gerðu jafntefli í sínum skákum og það nýtti Kazakinn Alisher Suleymenov sér með glimrandi sigri á Tyrkjanum Vahap Sanal. Spennn er mikil á alþjóðlega Reykjavíkurskákmótinu í boði Kviku eignastýringar og Brim!
Nokkrir Íslendingar eru meðal keppenda sem eru hálfum vinningi á eftir Suleymanov í 2-18. sæti. Þetta eru Guðmundur Kjartansson, Héðinn Steingrímsson, Hannes Hlífar Stefánsson og Jóhann Hjartarson.

Björn Þorfinnsson varð að einhverju leiti senuþjófur umferðarinnar en hann tefldi stórkoslega skák gegn frönskum skákmanni.
Byrjum á toppnum. Skák Maze og Deac komst aldrei á flug þannig að einhver væri í taphættu. Frakkinn fékk aðeins betra tafl en náði ekki að gera sér mat úr því. Samlandi hans, Moussard, náði ekki að ógna Adhiban að neinu viti og jafnteflið þar eiginlega aldrei í hættu. Skák Paulius og Seemann var skemmtileg en aldrei neinir vinningssénar af einhverju viti í boði. Aðrir á toppnum sem gerðu jafntefli voru Praveen og Emre Can innbyrðis og Guðmundur Kjartansson gegn Ivanchuk, komum nánar að því hér að neðan.
Það var því Suleymanov sem greip gæsina á 4. borði þar sem hann lagði Tyrkjann Vahap Sanal að velli. Suleymanov þessi er fínn vinur Guðmundar Kjartanssonar og að einhverju leiti fyrir hans tilstilli sem hann tekur þátt á mótinu. Kazkinn viðkunnalegi vann sér það helst til fræðgar í fyrra að leggja Magnus Carlsen að velli. Eins og sjá má skýrt hér að neðan.
Í skák dagsins gegn Sanal tefldi hann af fítonskrafti. Hann hélt í biskupuaparið í byrjuninni með því að koma svartreitabiskupnum fyrir á a3 reitnum. Sá biskup átti eftir að verða lykilmaður í skákinni!
12.d5!? exd5 13.Rd4 gaf til kynna að Kazakinn ætlaði sér stóra hluti í þessari skák, spilin voru lögð á borðið!
Tyrkinn fékk smá glugga í 21. leik til að mögulega snúa skákinni sér í vil en missti af því
Þessi í stað kom skiptamunsfórn 23.He4+!? og hvítur fékk frumkvæði þó svarta staðan héldi alveg sínu. 30…Dg7?? reyndist vendipunkturinn og fljótlega í kjölfarið fór Kazakinn að plokka peðin af svörtum á drottningarvæng…ljóst var í hvað stefndi þegar Suleymanov var með FIMM peð upp í skiptamuninn!
Guðmundur Kjartansson fékk eins og áður sagði skemmtilega pörun gegn goðsögninni Ivanchuk. Ivanchuk fékk örlítið betra eftir byrjunina en Guðmundur virtist aldrei í mikilli hættu og stýrði skákinni í jafntefli með skemmtilegum þráleik.
29.c5! var skemmtilegur og eftir 29…Hxc5 30.d7+ Kd8 kom 31.He1 og eina vörnin hjá svörtum er 31…He5 til að stoppa He8 en þá fer hvítur einfaldlega í sömu hótun á c-línunni og sagan endurtekur sig.
Björn Ívar náði þessari skemmtilegu mynd í lok skákar þeirra. Ósagt skal látið hvort Ivanchuk hafi verið svona ósáttur með úrslitin eða hvort hann hafi verið að reikna einhverjar leiðir sem betur máttu fara.

Gaman að skák þeirra fylgdi að mestu leiti skák Ivkov gegn Friðrik Ólafssyni frá árinu 1971!
Hannes og Hilmir tefldu spennandi innbyrðis skák um hvor ætti betri séns á að berjast við toppinn. Hannes hafði lengst af meiri stjórn á stöðunni en Hilmir með dýnamíska möguleika. Riddarahopp Hilmis inn í miðjar herbúðir Hannesar reyndist vendipunkturinn. Riddarinn átti ekki afturkvæmt og Hilmir fékk ekki nægjanlegt spil fyrir liðstapið. Hannes kominn vel uthvíldur inn í toppinn!
Héðinn sýndi þétta taflmennsku. Ungur danskur andstæðingur hans fórnaði peði en Héðinn einfaldlega hirti peðið og náði góðri stjórn á stöðunni, einn hans helsti styrkleiki. Héðinn kemur sér í fín færi.
Jóhann Hjartarson sýndi glimrandi góða takta. Jóhann fórnaði manni fyrir mátsókn á skemmtilegan hátt.
26…Bxg5!! fær tvö upphrópunarmerki hjá tölvunum, brilliant move eins og það er kallað í dag. Eftir 27.fxg5 kom 27…Hxd4 og svo hrókurinn aftur á g4 með of sterkum hótunum!
Björn Þorfinnsson var þó vafalítið senuþjófur dagsins. Björn fórnaði peði í byrjun og hafði mikið forskot í liðsskipan en kom auga á ótrúlega fallega hugmynd í stöðunni. Venjulega reyna menn að sækja þegar frumkvæðið liggur þannig en Björn skipti upp og leyfði svörtum að halda umframpeðinu.
22.Hce1!! kom eins og þruma úr heiðskýru lofti! Við fyrstu sýn virkar leikurinn svo asnalegur að stjórnendur útsendinga (DGT borða) fóru að gá hvort að upp hefði komið villa og tölvan hefði skáldað leik til að reyna að fylla inn í villuna. NEI var svarið!
Hugmyndin er frábær. Ef svartur hirðir skiptamuninn á biskupinn aðeins b8 reitinn á heilli skálínu! Þá kemur Ba6 og hvítur vinnur lið til baka!
Peter Heine Nielsen þótti þessi hugmynd tilkomumikil!
Wow! very cool, never seen such before.
— Peter Heine Nielsen (@PHChess) March 19, 2024
Skömmu síðar hafði Björn algjört tangarhald á stöðunni og Frakkinn losnaði aldrei út! Biskupinn var fastur og þarmeð hrókurinn á a8!

Skákin skýrð á engilsaxnesku:
Hin unga og efnilega Bodhana Sivanandan var komin á sýningarborð í umferðinni og vakti athygli. Hún tapaði í yfir 70 leikjum gegn frönskum alþjóðlegum meistara sem þurfti að hafa sig allan við. Einbeiting þessarar stúlku við borðið er á einhverju öðrum styrk en hjá flestum fullorðnum og ekki nema von að margir telji hana efni í einn af bestu skákmönnum heims!

Þótt Bodhana hafi lengst af verið að verjast fékk hún sitt færi og hefði getað náð í sitt fyrsta höfuðleður af alþjóðlegum meistara. Til þess fékk hún dauðafæri í tímahraki.
Hér lék Bodhana 54.Da4?? og skiptir í endatafl sem er líklegast unnið á svart. Hún missti af 54.Rd5+ sem mátar í tveimur leikjum. 54…Dxd5 55.Da4# eða 54…Kb5 55.Da4#
Bodhana fær nægan tíma til að vinna sinn fyrsta alþjóðlega meistara…spurning hvort hún verði vaxin upp úr bílstólnum sem hún þarf að leggja á stólinn sinn til að sjá almennilega á borðið!
Úrslit 7. umferðar, mikið af jafnteflum á efstu borðum, sem Suleymanov nýtti sér.

Suleymanov hefur hálfan vinning í forskot en pakkinn fyrir neðan er orðinn ansi þéttur, 17 skákmenn hálfum vinningi á eftir efsta manni og í þeim hópi eru þrír skákmenn yngri en 16 ára. Hin kínverska Lu Miaoyi er að eiga glimrandi mót! Fjórir Íslendingar í topp 30 og allir í pakkanum í skiptu öðru sæti.

Hægt er að sjá stöðu í hinum ýmsu flokkaverðlaunum hér.
Í áttundu og næstsíðustu umferð er það Kínverjinn Xiangyu Xu sem mætir Suleymanov. Við fáum tvær skákir á sviðinu en Hannes fær svart gegn Bogdan-Daniel Deac og Jóhann Hjartarson hvítt á Fjölnismanninn Paulius Pultinevicius.

MYNDAALBÚM 7. umferð (Hallfríður Sigurðardóttir)
Áttunda umferðin hefst klukkan 15:00 og gera má ráð fyrir skákskýringum um 17:00.
Hægt er að sjá skákir með 15 mínútna töf á eftirfarandi stöðum:
Fjöldi streymara/áhrifavalda eru mætt til leiks eins og í fyrra að sína frá sínum skákum.
- Anna Cramling sýnir á Twitch og Youtube þar sem Pia Cramling skýrir.
- Botez systurnar Alexandra og Andrea eru líka beint á Twitch og á Youtube og Jon Ludvig Hammer er að lýsa.
- WGM Dina Belenkaya er á Twitch og á Youtube og vinkona hennar Julesgambit lýsir
- Zachary Saine „The Chessnerd“ er á Twitch
- Tallulah Roberts „Lularobs“ er á Twitch
- Anna-Maja Kazarian er á Twitch og á Youtube
- Alexandra Prado er á Twitch
















