Gummi að tafli. Mynd: Halla

Reykjavíkurskákmótið, sem er í boði Kviku eignastýringar og Brims, verður framhaldið í dag með með 7. umferð . Umferðin hefst kl. 16.

Guðmundur Kjartansson (2465) er einn ellefu keppenda í skiptu efsta sæti með 5 vinninga. Hann fær sjálfa goðsögnina Vasyl Ivanchuk (2625).

Landsliðsliðsmennirnir Hannes Hlífar Stefánsson (2481) og Hilmir Freyr Heimisson (2355) tefla saman.

Eftirfarandi Íslendingar eru í beinni í sjöundu umferð:

 

 

Skákskýringar Jóns L. Árnasonar hefjast um kl. 18.

Rétt er að minná á veitingastaðinn Hnoss sem er með sértlboð fyrir skák- og skákáhugamenn. Ljúffengt kvöldverðartilboð á milli 18 og 20 á 3.990 kr. og drykkir á skák-tilboði.

Fjöldi streymara/áhrifavalda eru mætt til leiks eins og í fyrra að sína frá sínum skákum.

- Auglýsing -