Þriðja umferð Skákþings Íslands hefst kl. 15 í dag. Mótið hefur heldur betur byrjað fjörlega. Hannes og Helgi Áss efstir en stutt er í næstu menn.
Tvær skákir eru fyrirfram mest áhugaverðar. Íslandsmeistarinn Vignir Vatnar mætir Héðni Steingrímssyni og aldursforsetinn og forystusauðurinn Hannes Hlífar teflir við Hjörvar Stein sem þarf heldur betur fara í gang ætli hann að blanda sér í baráttuna.
- Dagur Ragnarsson (½) – Helgi Áss Grétarsson (2)
- Hjörvar Steinn Grétarsson (0) – Hannes Hlífar Stefánsson (2)
- Vignir Vatnar Stefánsson (1½) – Héðinn Steingrímsson (1½)
- Olga Prudnykova (1) – Hilmir Freyr Heimisson (1½)
- Bárður Örn Birkisson (1) – Guðmundur Kjartansson (1)
- Lenka Ptácníková (0) – Aleksandr Domalchuk-Jonasson (1)
Umferðin hefst kl. 15. Bein lýsing Ingvars Þórs hefst um tveimur tímum síðar.
Tilvalið að kíkja á skákstað. Skáktilboð á veitingastaðnum og hægt að fylgjst með og spjalla um leið.
- Chess-Results
- Skákskýringar á YouTube
- Beint á Chess.com
- Beint á Lichess
- Beint á Chessbase
- Auglýsing -
















