Þriðja umferð Skákþings Íslands hefst kl. 15 í dag. Mótið hefur heldur betur byrjað fjörlega. Hannes og Helgi Áss efstir en stutt er í næstu menn.

Tvær skákir eru fyrirfram mest áhugaverðar. Íslandsmeistarinn Vignir Vatnar mætir Héðni Steingrímssyni og aldursforsetinn og forystusauðurinn Hannes Hlífar teflir við Hjörvar Stein sem þarf heldur betur fara í gang ætli hann að blanda sér í baráttuna.

  • Dagur Ragnarsson (½) – Helgi Áss Grétarsson (2)
  • Hjörvar Steinn Grétarsson (0) – Hannes Hlífar Stefánsson (2)
  • Vignir Vatnar Stefánsson (1½) – Héðinn Steingrímsson (1½)
  • Olga Prudnykova (1) – Hilmir Freyr Heimisson (1½)
  • Bárður Örn Birkisson (1) – Guðmundur Kjartansson (1)
  • Lenka Ptácníková (0) – Aleksandr Domalchuk-Jonasson (1)

Umferðin hefst kl. 15. Bein lýsing Ingvars Þórs hefst um tveimur tímum síðar.

Tilvalið að kíkja á skákstað. Skáktilboð á veitingastaðnum og hægt að fylgjst með og spjalla um leið.

 

- Auglýsing -