Fimmta umferð Skákþings Íslands hefst kl. 15 í dag. Fjörlega hefur verið teflt og svo má einnig gera ráð fyrir í dag!

Stórmeistararnir Vignir Vatnar, Helgi Áss og Hannes Hlífar eru efstir með 3½ vinning. Hilmir Freyr fjórði með 3 vinninga og Sasha  fimmti með 2½ vinning. Töluvert bil er í næstu menn sem þó með góðum úrslitum í næstu umferðum geta blandað sér í baráttuna.

Aðalviðureign dagsins fyrirfram verður að teljast skák Hilmis og Hannesar. Hinir oddafiskarnir tefla við sterkustu skákkonur landsins.

Umferð dagsins:

  • Hilmir Freyr Heimisson (3) – Hannes Hlífar Stefánsson (3½)
  • Olga Prudnykova (1½) – Helgi Áss Grétarsson (3½)
  • Lenka Ptácníková (½) – Vignir Vatnar Stefánsson (3½)
  • Hjörvar Steinn Grétarsson (½) – Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2½)
  • Dagur Ragnarsson (1½) – Guðmundur Kjartansson (1½)
  • Bárður Örn Birkisson (1) – Héðinn Steingrímsson (1½)

Umferðin hefst kl. 15. Bein lýsing Ingvars Þórs hefst um tveimur tímum síðar.

Tilvalið að kíkja á skákstað. Skáktilboð á veitingastaðnum og hægt að fylgjst með og spjalla um leið.

 

- Auglýsing -