Indverjinn Dommaraju Gukesh er einn efstur fyrir lokaumferðina á Áskorendamótinu með 8,5 vinning af 13.  Fast á hæla hans koma þeir Ian Nepomniachtchi, Hikaru Nakamura og Fabiano Caruana, allir hálfum vinningi á eftir Indverjanum með 8 vinninga. Þessir fjórir mætast innbyrðis í lokaumferðinni þannig að það er ljóst að það verður æsispennandi lokaumferð!

Gukesh kom sér í toppsætið með því að leggja Alireza Firouzja að velli. Lengast af skákar virtist lítið í gangi, Firouzja jafnaði taflið og ef eitthvað var hann með aðeins betra tafl. Lítið virtist í gangi, hálfgert juð, en þá opnaðist smá gluggi fyrir Gukesh og Firouzja lék illa af sér.

45…Dg6?? leiðir eiginlega þráðbeint í erfitt hartnær tapað endatafl á svart. Hvítur virðist alltaf vinna peð og peð hans á drottningarvæng eru hættulegri en svörtu peðin. Gukesh landaði einum mikilvægasti vinningi á hans ferli hingað til. Nær hann að klára dæmið á morgun?

Nepomniachtchi hafði hvítt gegn Nakamura og fékk örlítið betri færi í byruninni en náði ekki að gera neitt úr því og líklegast var Nakamura með örlítið þægilegri stöðu þegar þeir endurtóku stöðuna þrisvar.

Nakamura fór í mikla grettu-leikfimi áður en hann tók boðinu en líklegast var alltaf erfitt fyrir hann að tefla stöðuna til vinnings.

Fabiano Caruana hélt vonum sínum á lífi með því að leggja Praggnanandhaa að velli með svörtu mönnunm. Fabi yfirspilaði Indverjann í miðtaflinu og vann skiptamun. Staðan var hinsvegar mjög lokuð og ekki alveg ljóst hvernig svartur ætti að vinnur úr liðsyfirburðunum. Með mikilli seiglu hafi Fabi þó sigurinn að lokum þó eitthvað hikst hafi verið í erfiðri úrvinnslu á köflum.

Vidit og Abasov gerðu jafntefli í leiðinlegri Petroff skák sem skipti engu máli fyrir niðurstöðu mótsins. Skákin var það leiðinlegt að hún verðskuldar ekki pláss í þessari frétt!

Úrslit

Staðan

Staðan í kvennaflokki

Lokaumferðin er framundan á morgun, sunnudag.  Nakamura hefur hvítt á Gukesh og það er einfaldlega allt eða ekkert fyrir Bandaríkjamanninn þar. Ljóst er einnig að skák Caruana og Nepo lýkur varla með jafntefli þar sem það myndi þýða að báðir væru úr leik. Þeir verða að selja sig dýrt til að tryggja sig inn í bráðabana um réttinn til að skora á Ding Liren heimsmeistara.

  • Skákir/Úrslit/Staða á Lichess Opna | Kvenna
  • Skákir/Úrslit/Staða á Chess.com Opna | Kvenna

Ýmsar leiðir eru til að fylgjast með:

Ýmsar rásir bjóða upp á samantekt (recaps) og annað efni.

- Auglýsing -