Aleksandr Domalchuk-Jonasson hóf í dag leik á Heimsmeistaramóti 20 ára og yngri sem fram fer í Gujarat á Indlandi. 125 skákmenn eru mættir til leiks á mótið og er Aleksandr númer 34 í stigaröðinni. Nokkrir stórmeistarar eru mættir til leiks og þeirra stigahæstur er ungstirnið Abhimanyu Mishra (2627) sem verður að teljast með sigurstranglegri keppendum.

Aleksandr mætti heimamanni í fyrstu umferð og vann mjög auðveldan sigur. Sá indverski leit ekki nálægt því út fyrir að standa undir elóstigunum sem hann hefur við nafnið sitt og var taflmennska hans á köflum hálf kjánaleg. Fín upphitun fyrir Aleksandr.

Framundan er langt og strangt mót en tefldar eru 11 umferðir á mótinu og einn frídagur, laugardaginn 8. júní.

Aleksandr er nokkuð brattur í samtali við Skak.is. Hann segir internettenginu erfitt að nálgast, maturinn er sterkur og hitinn yfir 40 gráðum! Aleksandr deilir svo herbergi með Kanadamönnum. Við óskum Aleksandr góðs gengis á mótinu!

- Auglýsing -