Áskorendaflokkur Skákþings Íslands hófst í gær með fyrstu umferð.

33 skákmenn taka þátt. Flokkurinn er frekar þéttur sem sést best á því að stigamunur í fyrstu umferð var oft aðeins um 200 skákstig.

Af 15 skákum lauk sjö skákum með jafntefi en átta með því að sá stigahærri vann. Margt sem bendir til þess að mótið verði mjög jafnt og spennandi.

Önnur umferð hófst núna kl. 13.

 

 

 

 

 

 

- Auglýsing -