Önnur umferð Áskorendaflokks lauk í dag en mótið hófst um helgina með tveimur umferðum. Framundan er hart prógram þar sem teflt er á hverjum degi. Þeir Arnar Milutin, Gauti Páll, Björn Hólm og Ingvar Wu hafa allir 2 vinninga að loknum helgarumferðunum tveimur.
Björn Hólm lagði Kristján Örn að velli á efsta borði. Kristján beið mjög passíft í skotgröfunum. Á tíma voru flest peð svarts á 6. reitaröð en flest peð hvíts á 4. reitaröð. Björn hafði mikla stöðulega yfirburði en fann ekki rétt gegnumbrotið og Kristján náði að jafna taflið og átti jafnvel sénsa á kafla. Kristján náði ekki að skipta um gír og Björn sneri að lokum á Kristján og hafði baráttusigur.
Arnar vann prýðis endataflssigur gegn Gísla Magnússyni á öðru borði með svörtu. Hann nýtti sér vel miðborðspeð sín og þjarmaði jafnt og þétt að hvítum.
Gauti hafði sigur gegn Jóhanni Ragnarssyni á þriðja borði. Byrjanataflmennskan var mjög frumleg hjá báðum. Blandan af Rh4 og f4 svo snemma tafls er sjaldséð og svartur svaraði með krók á móti bragði með h6 og g5! Líklegast var ekki rétt í kjölfarið að losa spennuna með g5-g4 hjá svörtum og hvítur fékk betra tafl. Eftir 12.f5 virtist hvíta staðan flæða mun betur og Gauti naut sín greinilega í stöðunni og vann snarpan sigur.
Ingvar Wu bættist svo í hópinn með sigri gegn Degi Sverrissyni þar sem sá síðarnefndi missteig sig snemma í byrjuninni.
Almennt var minna um óvænt úrslit í 2. umferð en þó má nefna gott jafntefli hjá Arnari Breka gegn Guðna Stefáni og Brynjar náði góðum sigri gegn landsliðskonunni Hallgerði Þorsteinsdóttur.

Fjórir efstir og jafnir eins og áður sagði en mikið eftir og mjög sterkir skákmenn með 1,5 vinning.

í þriðju umferð sem fram fer á morgun mætast Gauti Páll – Björn Hólm annars vegar og Arnar Milutin – Ingvar Wu hinsvegar á efstu borðunum.
Umferðirnar á virku dögunum hefjast klukkan 18:30!
















