Þeir Björn Hólm Birkisson og Ingvar Wu Skarphéðinsson eru efstir og jafnir með fullt hús að loknum þremur umferðum Áskorendaflokks. Þriðju umferð lauk nú í kvöld og þar náðu þeir sér báðir í sigra í topbaráttunni. Björn Hólm lagði Gauta Pál með svörtu og Ingvar vann góðan sigur gegn Arnari Milutin, einnig með svörtu.
Björn fékk nokkuð skyndilega mátsókn gegn Gauta og líklegas missti Gauti af sénsinum á að koma riddara sínum betur fyrir í kringum 20. leik með því að leika Rb5-c7-d5 til að loka á hvítreitabiskup svarts sem varð algjört stórveldi í mátsókninni.
Ingvar Wu tefldi fína skák í kóngsindverjanum gegn Arnari Milutin. Ingvar beið átekta, fórnaði peði tímabundið til að virkja svartreitabiskup sinn og eftir uppskipti sat Arnar eftir með gríðarlega veikan kóng og svartreitabiskup Ingvars varð einmitt lykilmaður í lokin!
Bárður hafði betur gegn Adam í hörkuskák. Skákin var í dýnamísku jafntefli en Adam gerði þá taktísk mistök sem Bárður nýtti sér í 27. leik
Lenka er eins og Bárður með 2,5 vinning eftir sigur gegn Roberto Eduardo Osorio Ferrer. Lenka þurfti að hafa vel fyrir sigrinum og Roberto er greinilega hörkuskákmaður!
Benedikt Þórisson komst einnig í 2,5 vinning en hann lagði Harald Baldursson að velli. Haraldur hóf endatafl peði yfir eftir fína skák en tapaði peðinu og lék svo jafnteflislegu biskupaendatafli niður í tap.
Úrslit

Staðan

Björn Hólm mun hafa hvítt gegn Ingvari í 4. umferðinni og svo mætast Benedikt-Bárður og Arnar Milutin – Lenka. Áhugaverð barátta framundan!
Umferðirnar á virku dögunum hefjast klukkan 18:30.

















