Þriðja og fjórða umferð fóru fram í dag í Riga þar sem fjórir íslenskir skákmenn tefla á fjögurra daga, átta umferða kappskákmóti í Riga. Stigahæstur íslensku keppendanna er landsliðsmaðurinn Hilmir Freyr Heimisson en ekki langt á eftir honum kemur svo Aleksandr Domalchuk-Jonasson, ferskur frá HM á Indlandi. Bræðurnir Adam og Josef Omarssynir taka einnig þátt á mótinu. Dagurinn var heilt yfir góður, aðeins tvær tapskákir í átta skákum.
Hilmir hafði tvo vinninga af tveimur eftir fyrri daginn og var einn Íslendinganna í beinni útsendingu í þriðju umferð þar sem fimm efstu borðin eru sýnd. Hilmir hafði þar svart og mætti lettneska skákmanninum Emils Janis Mierins (2224). Upp kom sikileyarvörn og úr varð mjög flókin og skemmtileg baráttuskák.
Hilmir virtist gera allt rétt til að sækja til sigurs með svörtu. Hann varðist sóknartilburðum hvíts og hafði betra tafl og fórnaði skiptamun sem var réttlætanleg fórn. Svartur hélt fínni stöðu og góðum sénsum tengdu frípeði á e-línunni. Í lokin gaf Hilmir eftir, gaf e-peðið og staðan var fljót að hrynja. Tap hjá Hilmi að þessu sinni.
Hinir strákarnir höfðu einn vinning eftir umferðirnar tvær en náðu heilt yfir góðum degi. Aleksandr vann með svörtu gegn NM Neiliu Maklakovu (1895) og Josef vann með hvítu gegn Fransisco Mattia Liloni (2203), alvöru höfuðleður þar! Adam gerði svo jafntefli við sinn andstæðing, Lettann Vadim Aleidzans (1772).
Enginn Íslendingana var í beinni útsendingu í fjórðu umferð og því miður mun það ekki breytast í fimmtu umferð. Þrátt fyrir það náðust ágætis úrslit. Hilmir hafði hvítt og lagði AIM Abhijit Patil Yash (1870) og kom þar fram hefndum fyrir Aleksandr. Aleksandr sjálfur vann einnig, gegn Ítalanum Danilo Covello (2073). Josef náði ekki að fylgja eftir frábærum sigri og laut í dúk gegn Reinis Valdats (2158). Adam gerði aftur jafntefli, nú gegn Naomi Maklakovu (1870).
Hilmir og Aleksandr hafa 3 vinninga en bræðurnir hafa báðir 2 vinninga. Í 5. umferð á morgun fá Hilmir og Aleksandr báðir svart gegn Letta og Litháa með um 2200 elóstig.

















