Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson átti aftur farsælan tvöfaldan dag á Maplewood Chess Club Invitational, sterku lokuðu mótí i Kanada. Vignir gerði jafntefli í fyrri skákinni þar sem hann var að pressa og vann nokkuð öruggan sigur í seinni skákinni og er með efstu önnum með 3,5 vinning eftir 5 umferðir.

Í fyrri umferð dagsins, þeirri fjórðu, hafði Vignir hvítt gegn heimamanninum og stórmeistaranum Bator Sambuev (2448). Vignir fékk mjög þægilega stöðu úr Catalan-byrjuninni sem hann hefur beitt óspart undanfarið. Hvítur var með pressu á a-peð svarts og þægilegri stöðu í alla staði, betri menn og peðastöðu. Einhvern slagkraft vantaði til að fylgja frumkvæðinu eftir og e.t.v. hefði Vignir bara átt að sækja a-peð svarts en hefur líklegast talið stöðuna og góða til að fara í slíkar aðgerðir strax.

Sambuev náði á endanum að hanga á skiptum hlut og jafntefli niðurstaðan í endataflinu.

Í seinni skákinni hafði Vignir svo svart gegn öðrum heimamanni, alþjóðlega meistaranum Nikolay Noritsyn (2450). Þar tefldi Vignir algjörlega glimrandi sikileyarvörn. Oft er talað um að svartur jafni taflið ef hann nær að leika …d5 undir góðum kringumstæðum. Vignir náði því með 16…d5

Leikurinn gengur vel upp þar sem 17.e5 eins og andstæðingur hans lék er svarað með 17…Re4! og svartur er kominn með betra tafl. Segja má að hér hafi grunnurinn að sigrinum verið lagður. Vignir vann fljótlega lið, náði í skiptamun og eftirleikurinn varð nokkuð auðveldur.

Vignir hefur því 3,5 vinning af 5 mögulegum og situr í 3. sæti á eftir Jorden van Foreest sem hefur 4,5 og Aryan Tari sem hefur 4 vinninga.

í sjöttu umferð mætir Vignir stigalægsta keppandanum FM Renzo Gutierres (2198) og hefur hvítt. Gott færi fyrir Vigni að styrka stöðu sína.

- Auglýsing -