Íslensku landsliðsmaðurinn Hilmir Freyr Heimisson tapaði í dag í fjórðu umferð á opnu móti í Danmörku, OBRO international sem fer fram í Kaupmannahöfn frá 22-28. júli og verða tveir tvöfaldir keppnisdagar, svipað og á Reykjavíkurskákmótinu. Alls eru 54 keppendur sem tefla 9 umferðir og er Hilmir númer 8 í stigaröðinni. Fimm stórmeistarar eru skráðir til leiks.
Fjórða umferð fór fram í dag eins og áður sagði og þar hafð Hilmir hvítt gegn danska FIDE meistaranum Casper Yukun Liu (2316). Upp kom caro-kann vörn og fékk Hilmir fínasta tafl með hvítu. Hann valdi líkelgast vitlaust plan í miðtaflinu, innrás hróks hann í gegnum a-línuna leit vel út við fyrstu sín en sá danski lumaði á lúmskri leið til að loka hrókinn inni og landaði liðsvinningum.
Hilmir náði að bjarga sér í endatafl með tvo létta menn gegn hróki og peði en peðið var illviðráðanlegt og þrátt fyrir að vinna skiptamun til baka voru peð svarts ofurefli fyrir riddara Hilmis og hann varð að lúta í dúk.
Hilmir hefur því 2,5 vinning af 4 mögulegum og mætir danska FIDE-meistaranum Adrian Stenstrop Thorsen (2226) í fimmtu umferðinni á morgun.
















