Hannes Hlífar Stefánsson hóf í gær taflmennsku á Kanaríeyjum á opnu móti sem ber nafnið VII Torneo Internacional Jugando con las Estrellas 2024 en enska heitið á mótinu er „Playing with the stars„. Keppendur eru alls 120, langflestir spænskir. Titilhafar eru vel yfir þriðja tug og er Hannes númer 6 í styrkleikaröðinni en stigahæstur er Cristobal Villagra (2603) frá Chile.

Hannes átti frekar náðugan dag í fyrstu umferð en þar hafði hann hvítt gegn heimamanninum Sergio Rodriguez (1883). Sergio tefldi afbrigði í kóngsindverja sem hann hafði greinilega ekki tök á, veikti sig með …b6 og snemma og lék svo í kjölfarið samviskusamlega af sér peði og tapaði í 20 leikjum. Hannes þurfti varla að ræsa vélina, fín upphitun enda er alltaf erfitt að meta skákmenn á 1850-2100 stigabili þar sem geta leynst mjög „underrated“ og hættulegir skákmenn. Hér var það ekki tilfellið!

Í dag var það 2. umferð og hafði Hannes svart gegn þýskum FIDE meistara Michael Schenderowitsch (2187). Skákin var ekki jafn auðveld og í fyrstu umferð en þó auðveld.

Það hlýtur að vera ákveðið áhyggjuefni þegar mennirnir hjá hvítum á drottningarvæng eru allir í heimahöfn í 23. leik og hvítur er korter í mát! Leikir Hannesar á undan voru þó glæsilegir og flottar fórnir á f2 og e2!

Fín byrjun hjá Hannesi en fastlega má búast við harðari mótspyrnu á næstu dögum! Á morgun, sunnudag, er tvöföld umferð.

- Auglýsing -