Lenka Ptacnikova og synir hennar Adam og Josef Omarssynir hófu leik á Summer Prague Open. Mótið er opið mót sem fer fram eins og nafnið gefur til kynna í Prag í Tékklandi. Alls taka 208 skákmenn þátt en þó aðeins einn stórmeistari en þó fjöldi titilhafa.
Lenka er númer 40 í stigaröðinni, Adam er númer 81 og Josef númer 122. Einn tvöfaldur dagur er á mótinu á sunnudeginum þegar 3. og 4. umferð eru tefldar.
Í fyrstu umferðinni tefldi Josef upp fyrir sig og var á sýningarborði á 18. borði. Þar mætti Josef þýskum skákmanni Tobias Kuhn (2223). Upp kom hvasst afbrigði, Anti-Moscow í Semi-Slavanum. Aðeins vantaði slagkraft í byrjuninni hjá Josef og 9.a3?! var of passífur leikur. Sá þýski virtist þekkja stöðutýpuna betur og hvítu stöðuni hrakaði snemma í miðtaflinu.
Lenka og Adam tefldu niðurfyrir sig og unnu bæði. Lenka hafði svart gegn heimamanninum Pavel Blazek (1859) á meðan Adam lagði skáktúrista frá Danmörku, Christoffer Vinther (1752) að velli, einnig með svörtu.
Í 2. umferð mætir Adam FIDE meistaranum Rudolf Jun (2198) og hefur hvítt á sýningarborði. Lenka hefur hvítt gegn WCM Diana Tynyshtyk (1935) frá Kazaksthan. Josef hefur svart gegn indverskum skákmanni, Atharva Bakhare (1775).
















