Vignir Vatnar Stefánsson (2500) vann sigur í 4. umferð og er að byrja vel á opna mótinu Leca Chess Open í Portúgal. Vignir er númer 3 í stigaröð á þessu 209 manna skákmóti. Auk Vignis eru með í för þeir Benedikt Briem (2148), Theodór Eiríksson (1638) og Eiríkur Orri Guðmundsson (1517). Vignir hafði 2,5 vinning fyrir umferðina en Benedikt og Eiríkur 2 vinninga.
Í 4. umferðinni mætti Vignir írönskum WGM Mobinu Alinasab (2354). Vignir tefldi nokkuð villt í byrjuninni og snemma í miðtaflinu og ætlaði sér greinilega að ná í sigur. Peðastaða Vignis var glæfraleg og hann gaf peð en svartur var á móti enn eftirá í liðsskipan.
Vandamálin reyndust of stór og 21…Be6? tapaði of miklu liði. 21…Dg6 var eini leikurinn í stöðunni. Vignir tók að vinna lið og náði sér í sigurinn.
Benedikt Briem fékk svart gegn sterkum andstæðingi, Georgios Gkoumas (2450) alþjóðlegum meistara frá Grikklandi. Benedikt lenti í vandræðum með miðborðspeð sín í miðtaflinu og fékk ekki nægjanlegt spil í kjölfarið og varð að játa sig sigraðann.
Eiríkur mætti sterkum andstæðingi, Rodrigo Ribero (2196) og varð að lúta í dúk. Sonur hans, Theódór nýtti tækifærið og náði pabba sínum að vinnum með sigri gegn Matias Montenegro (1780).
Tvöföld umferð er framundan á laugardeginum og þá ættu línur að skýrast töluvert! Vignir er sem stendur efstur ásamt átta öðrum skákmönnum með 3,5 vinning. Hann fær svart gegn Piotr Brodowski (2428) alþjóðlegum meistara frá Póllandi.
















