Stjórn Skákskóla Íslands hefur ráðið Björn Ívar Karlsson sem skólastjóra skólans. Björn Ívar er reyndur skákkennari til margra ára, fyrrum þjálfari kvennalandsliðs Íslands og fyrrum yfirþjálfari Breiðabliks.
Björn hefur mikla reynslu af skipulagningu kennslu og uppbyggingu afreksstarfs á öllum styrkleikastigum. Stjórn Skákskóla Íslands þakkar öllum umsækjendum, en alls sóttu fimm einstaklingar um stöðuna.
- Auglýsing -













