Eftir erfiða byrjun í lokuðum IM flokki í Olomouc í Tékklandi ákvað landsliðskonan og margfaldi Íslandsmeistari kvenna, Lenka Ptacnikova (2086) að fylgja þjóðráði Botvinnik’s og rússneska skákskólans. Eftir erfiða byrjun á móti er mikilvægt að „koma sér inn“ í mótið með því að ná úrslitum. Það er nákvæmlega það sem Lenka gerði í 4. umferðinni í Olomouc.

Lenka mætti FIDE meistaranum Julian Leitgeib (2313) og hafði hvítt. Julian var fjórði skákmaðurinn af fimm stigahæstu mönnum mótsins sem Lenka mætti í fyrstu fjórum umferðuðunum.

Lenka valdi mjög praktíska nálgun með hvítu og var ekkert að rugga neinum bátum. Leitgeib fékk enga sénsa með svörtu og bauð jafntefli í jafnri stöðu áður en það væri um seinan!

Fín úrslit fyrir Lenku sem kemst á blað og ætti vonandi að vaxa ásmegin eftir því sem líður á mótið!

- Auglýsing -