Fimmta og sjötta umferð voru tefldar í dag á Spilimbergo Open, opnu móti á Ítalíu í samnefndum bæ Þeir Helgi Áss Grétarsson og Aleksandr Domalchuk-Jonasson tefla á mótinu.
Í fimmtu umferð náði Helgi sér í sigur gegn ítalska alþjóðlega meistaranum Alexander Bertagnolli (2335). Í langri og strangri skák náði Helgi að vinna skiptamun og loks skila vinnignum heim þrátt fyrir erfiða tæknivinnu.
Á sama tíma náði Aleksandr ekki að búa til vinningsfæri í sinni skák.
Í sjöttu umferð reyndi Helgi aftur að búa til vinningsfæri en varð ekki kápan úr því klæðinu.
Á sama tíma hafði Helgi svart gegn stigalægri andstæðing en tókst ekki að búa til nein færi.
Í sjöundu umferð á morgun hafa báðir íslensku keppendurnir hvítt. Helgi mætir Aleksandr Savanovic (2337) sem er IM frá Bosníu. Á sama tíma hefur Domalchuk hvítt gegn CM Arsh Shaik (2218) frá Indlandi.
Spilimbergo Open er 9 umferða opið mót sem fram fer í ítalska bænum Spilimbergo frá 9-15. ágúst. Mótið er fyrir skákmenn yfir 2000 elóstigum með yfir 150 skákmenn. Belginn Daniel Dardha er stigahæstur keppenda of meðal þátttakenda er YouTube-stjarnan Levy Rozman sem eltist nú við stórmeistaratitilinn. Helgi Áss er númer 12 í stigaröðinni og Aleksandr er númer 30. Tímamörk eru 90+30












