Guðrún Fanney Briem hefur tekið sæti í kvennalandsliði Íslands sem teflir á Ólympíumótinu í Búdapest 10.-23. september nk. Olga Prudnykova dró sig út úr landsliðinu af persónulegum ástæðum og tekur Guðrún Fanney sæti hennar. Guðrún Fanney verður þar með yngsti landsliðsmaður Íslands í skák frá upphafi en hún er fædd árið 2010.

Landslið Íslands í kvennaflokki eftir breytingu (borðaröð ekki ákveðin):

  1. WGM Lenka Ptácníková (2086)
  2. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (2013)
  3. WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (1938)
  4. Iðunn Helgadóttir (1837)
  5. Guðrún Fanney Briem (1764)

Liðsstjóri liðsins er FM Ingvar Þór Jóhannesson

- Auglýsing -